Þróun og hönnun
Inngangsorð

Í þessum flokki er fjallað um þróun og hönnun á þjónustunni, ýmsa vefstaðla og prófanir sem nauðsynlegt er að framkvæma til að tryggja gæði þjónustunnar.
Upplýsingasamfélagið hefur verið á hraðri ferð síðustu ár og ýmsar tækninýjungar líta sífellt dagsins ljós, í kjölfarið verða til óskir samfélagsins um aukna þjónustu að hálfu hins opinberra. Þess vegna verður að taka mið að mögulegri tækniþróun í hönnun vefsvæða og huga að aðlögun opinberrar þjónustu inn í mismunandi tækniumhverfi. Sérstaklega þarf að hafa í huga möguleika á að bæta og efla rafræna þjónustu.
Mikilvægt er að vefsíður séu kóðaðar frá grunni eftir stöðlum alþjóðlegu samtakanna W3C (e. World Wide Web Consortium). Staðlar eru meðal annars mikilvægir til þjónustan virki í mismunandi vöfrum og að vefsíður séu aðgengilegar fyrir alla. Með því að fylgja stöðlum er tryggt að vefsíður virki í vöfrum framtíðarinnar.
Hönnunarferlið getur verið flókið og oft eru leiddir saman ólíkir aðilar. Að lokinni hönnun tekur við vefun (uppsetning útlits) og önnur forritun. Nauðsynlegt er að haldið sé vel utan um verkefnin á þessu stigi, markvissri verkefnisstjórnun beitt og fylgst vel með kostnaði.

