1. Val á kerfum og samstarfsaðilum

Val á kerfum og samstarfsaðilum

Inngangsorð

Val á kerfum

Vefir opinberra aðila snúast um að veita almenningi þjónustu. Áður en stofnanir og sveitarfélög ráðast í vefuppsetningu eða breytingar á núverandi þjónustu er nauðsynlegt að skilgreina hvaða þjónustu á að veita og hvaða markmiðum sé stefnt að.

Í þessum efnisflokki má finna ýmsar upplýsingar og ráð sem styðjast má við í upphafi og undirbúningi heimasíðugerðar og smærri vefþróunarverkefna. Fjallað er um almennan undirbúning, þarfagreiningu, stjórnun verkefna, kaup á vefumsjónarkerfi og mikilvægi þess að samþykkt sé vefstefna.

Í umfjöllun innan undirflokka er einnig að finna ýmsa gátlista sem styðja við ákvarðanatökuferlið, meðal annars vegna samninga og gerð verk-, tíma- og kostnaðaráætlunar.

Áður en ráðist er í hugbúnaðarkaup eða leit eftir samstarfsaðilum er grundvallaratriði að ákveða hvaða þjónustustigi sé stefnt að, hvort vefurinn eigi eingöngu að birta upplýsingar (einfaldir upplýsingavefir sem tiltölulega auðvelt er að setja upp) eða hvort ganga eigi lengra og stefna að gagnvirkni (þjónustu með umsóknum í gegnum netið eða notkun gagnagrunna).







Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica