1.3 Mat á valkostum
1.3.2 Samstarfsaðilar/birgar
Mat á samstarfsaðilum
Til að meta getu væntanlega samstarfsaðila má hafa eftirfarandi að leiðarljósi:
- Fá yfirlit yfir vefi eða verkefni sem fyrirtækið þjónustar eða hefur komið að á einhvern máta.
- Samstarfsaðilar sýni fram á að hafa í þjónustu sinni mannskap sem nýtist við þróun, hönnun og þá tækniþjónustu sem farið er fram á.
- Óska eftir upplýsingum um hvernig aðilar hyggjast tryggja gæði reksturs- og þjónustu, með með því að fá upplýsingum gæðakerfi viðkomandi aðila.
- Óska eftir upplýsingum um hvaða stöðlum sé fylgt í starfsseminni.
- Hvaða möguleikar eru á samskiptahæfni við annan hugbúnað.
Upplýsingar um þjónustu
- Hver er almennur viðbragðstími verksala?
- Notendastuðningur í gegnum síma, námskeiðahald, aðstoð við innsetningu á efni og breytingar. Verksali veiti þessa þjónustu eftir því sem óskað er eftir henni.
- Verkkaupi hafi aðgang að þjónustuborði þar sem hægt er að senda inn beiðnir um þjónustu. Verksali skal tilgreina almennan þjónustutíma.
Verksali skal samþykkja í samningi verðskrá þeirrar þjónustu sem liggur utan samnings.

