1.4 Þjálfun starfsmanna

1.4.2 Þjálfun í aðgengismálum

Námskeið í aðgengismálum

Þrátt fyrir ítarlegar leiðbeiningar á vefnum um aðgengismál er alltaf hætta til staðar að vefumsjónarmenn tileinki sér ekki rétt vinnubrögð til að tryggja gott aðgengi að vefjum sínum.

Sértæk námskeið í aðgengismálum fjalla um mikilvægi aðgengismála og notendur fá þar með einnig reynslu og að kynnast frá fyrstu hendi þeim hjálpartækjum sem fatlaðir einstaklingar nýta sér til að skoða vefi.

Á aðgengisnámskeiðum yrði meðal annars fjallað um:

  • Mikilvægi staðla í hönnun vefja.
  • Töflunotkun og stillingar á töflum.
  • Litanotkun.     
  • Meðferð á texta, notkun hausa og hönnun skýringartexta með myndum.
  • Margmiðlunarefni / textun o.fl.

Umfjöllun á UT-vefnum og í vefhandbók

Einnig hafa ítarlegum leiðbeiningum verið safnað saman í sérstökum kafla um aðgengismál hér í vefhandbókinni.

Ítarefni

Eftirfarandi vefslóð er ekki hýst á UT-vefnumGátlisti W3C - til að tryggja lágmarksaðgengi vefja

Eftirfarandi vefslóð er ekki hýst á UT-vefnumPrófunarvélar - settu vefinn þinn í sjálfvirka prófun







Útlit síðu: