1.7 Stjórnun og rekstrarumhverfi

1.7.1 Yfirbygging og undirbúningur rekstrar

Yfirstjórn – eigendur verkefnis

Eigendur verkefnis (vefsins) eru umboðsmenn tilnefndir af forstöðumanni stofnunar/sveitarfélags. Í yfirstjórn sitja aðilar sem hafa umboð til að taka ákvarðanir sem tengjast verkefninu og gæti haft í för með sér kostnað.

  • Sinnir stefnumótun og ber ábyrgð á vefstefnu og eftirfylgni hennar.
  • Samþykkir verk-, tíma- og kostnaðaráætlun.
  • Tekur ákvarðanir um þjónustustig og hvort eigi að fara í sérverkefni.
  • Sinnir markmiðssetningu.

Vefstjórn – tæknilegt viðhald og rekstur

Stofnanir og sveitarfélög hafa í auknum mæli haft vefstjóra í fullu starfi en einnig er algengt að starfsmenn taki þetta hlutverk að sér samhliða öðrum störfum.

  • Vefstjóri sér um daglegt viðhald vefsins, samningsstjórnun og samskipti við birgja.
  • Í samráði við ritstjóra sér vefstjóri um innsetningu á efni. Byggir upp og viðheldur veftré, texta, myndum og tenglum.
  • Vefstjóri sér um að öryggismál séu í lagi í samráði við hýsingaraðila.
  • Sinnir upplýsingagjöf til yfirstjórnar, fylgist með árangursmælingum í tengslum við markmið og stefnu vefsins.
  • Vefmælingar.
  • Vinnur að aðgengismálum og ber að tryggja aðgengi allra einstaklinga að þjónustunni.
  • Sér til þess að tenglar séu óbrotnir og í lagi.
  • Sér til þess að mikilvægum stöðlum sé fylgt, prófar vefinn reglulega. Tryggir að vefinn sé hægt að nota í mismunandi vöfrum.
  • Sinnir verkefnisstjórnun í þróunarverkefnum.

Ritstjórn – stjórnun á innihaldi

Ritstjórn vefsins samanstendur af einstaklingum með þekkingu á efni og þeim upplýsingum sem stofnuninni/sveitarfélaginu er ætlað að miðla.

  • Vefritstjórn, efnisöflun og uppsetning efnis.
  • Vefritstjóri ber ábyrgð á að innihald vefsins sé til fyrirmyndar, uppfært, skrifar eða útvegar texta þegar þess gerist þörf.
  • Ber ábyrgð að farið sé að höfundarréttarlögum.






Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica