1.7 Stjórnun og rekstrarumhverfi

1.7.2 Rekstrarform

Rekstrarform ákvarðast af tilgangi og umfangi reksturs

Eigin rekstur

Eigin rekstur snýst um að til sé staðar innra umhverfi utan um verkefnið, í því felst að miðlægur tölvubúnaður sé hýstur innanhúss ásamt því að mannafli sé til staðar sem sér alfarið um rekstur og viðhald.

Kostir

  • Þessi leið getur hentað stærri stofnunum/sveitarfélögum sem reka mörg upplýsingatækniverkefni.
  • Umfang reksturs og viðhalds er það mikið að fjárhagslegum ávinningi má ná með því að styrkja innviði.
  • Sveigjanleiki verður til staðar til að mæta breyttum kröfum og þörfum.

Gallar

  • Eigin rekstur felur oft í sér mikla fjárfestingu í upphafi, slíkt gæti dregið athygli stjórnenda og annarra starfsmanna frá mikilvægri kjarnastarfsemi.

Hvað þarf að vera til staðar?

  • Innri þjónustueining sem sérhæfir sig á sviði rekstrar og upplýsingatækni.

Útvistun

Með útvistun verkefna er hugsanlegt að kostnaðarlegt hagræði verði umtalsvert þar sem sérhæfing þjónustufyrirtækjanna skapar hagræðingu í verkferlum. Í samningum við birgja þarf að skilgreina kröfur til birgja: Umfang þjónustu, upplýsingaskyldu verksala, viðbrögðum við vanefndum og meðferð ágreiningsmála.

Kostir

  • Samið er við þjónustuaðila um heildarrekstur kerfa og þjónustu, verkkaupi getur því lagt alla áherslu á að vinna að kjarnastarfssemi.
  • Þessi leið gæti hentað smærri stofnunum og sveitarfélögum sem hafa ekki möguleika á að styrkja innviði.

Gallar

  • Minni sveigjanleiki til að mæta breyttum kröfum og þörfum.
  • Einhverjar líkur eru á því að verkkaupi verði of háður þeim aðila sem tekur að sér verkefnið.
  • Ef nauðsynlegt er að bjóða verkið út fylgir því umtalsverður kostnaður.
  • Erfitt gæti reynst að skilgreina þjónustustig sem óskað er eftir og ef það er of ítarlegt fylgir því kostnaður sem erfitt gæti reynst að breyta eftir á.

Hvað þarf að vera til staðar?

  • Þekking á gerð og framkvæmd samninga.

  • Þekking á samningsstjórnun.

Blönduð leið

Í blandaðri leið er haldið utan um innri rekstur en þó er hluti þjónustunnar skilgreindur í samningi við þriðja aðila.

Kostir

  • Nýtir sveigjanleika eigin reksturs en á sama tíma er stefnt að hagræðingu í gegnum útvistun.

Gallar

  • Tveir aðilar koma beint að rekstri sama verkefnis, samskipti gætu orðið flókin og því er nauðsynlegt að skilgreina vel hlutverk hvers og eins.

Hvað þarf að vera til staðar?

  • Þekking á gerð og framkvæmd samninga.
  • Grundvallarsérhæfing á sviði rekstrar og upplýsingatækni.

 







Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica