1.7.3 Gerð samninga, verðfyrirspurnir og útboð
Í öllum innkaupum ber að fara eftir innkaupareglum sem stofnanir og sveitarfélög hafa sett sér. Í opinberri innkaupastefnu ríkisins er rætt um ábyrgð þeirra sem fara með framkvæmd innkaupa af hálfu ríkisins. Þeim er skylt að:
- Fylgja lögum og reglum um opinber innkaup.
- Haga innkaupum í samræmi við innkaupastefnu ríkisins.
- Fylgja leiðbeiningum sem gefnar eru út um opinber innkaup.
Verðfyrirspurnir
Verðfyrirspurn felst í því að finna hvar unnt er fá ákveðna þjónustu/vöru og hvað hún kostar. Hægt er að gera það munnlega, í gegnum tölvupóst eða bréfleiðis.
- Leitað er til nokkurra aðila um upplýsingar um verð á tiltekinni vöru eða þjónustu.
- Rétt er að hafa verðfyrirspurn formlega (skriflega) til að nauðsynleg gögn berist stjórnendum til ákvarðanatöku.
- Í kjölfar fyrirspurnar er tekin ákvörðun um að skipta við ákveðinn aðila með samning.
- Með verðfyrirspurn er erfiðara að leita upplýsinga um gæði og burði væntanlegra verksala, slíku má frekar ná fram með útboði.
Útboð
Útboð krefst ítarlegrar úttektar á rekstrinum og því verkefni sem á að framkvæma. Fara þarf í útboð að vel athuguðu máli.
- Í útboðsgögnum þarf að koma skýrt fram hvernig tilboð verði metin og hvaða forsendur eru til grundvallar vali á samningsaðila.
- Þarfagreining þarf að vera mjög ítarleg.
- Staðalinn ÍST 32:1995 [ÍST 32:1995 "Almennir skilmálar um útboð og verksamninga vegna gagnavinnslukerfa"] má nota í útboðsvinnu.
Innkaup samkvæmt rammasamningi
Ríkiskaup hafa gert rammasamninga fyrir ríkisstofnanir um kaup á hugbúnaði o.fl. Ríkisstofnanir geta snúið sér beint til seljanda á grundvelli rammasamnings.
Gerð samninga og eftirlit
Samningar þurfa alltaf að vera skriflegir milli verkkaupa og verksala um tiltekna þjónustu eða verkefni. Fjármálaráðuneytið hefur gefið út handbók um gerð þjónustusamninga.
- Samningur þarf að kveða skýrt á um skyldur samstarfsaðila.
- Í samningi þarf að skilgreina verkefnið, þjónustu, umfang og gæði.
- Í samningi er kveðið á um réttindi og skyldur samningsaðila.
Ítarefni
- Lög og reglur um opinber innkaup og framkvæmdir
- Innkaupareglur sveitarfélaga
- Fræðsla um innkaup á UT-vefnum
- Útvistunarstefna ríkisins 2006
- Þjónustusamningar
- Handbók um gerð þjónustusamninga

