1.2.1 Þarfagreining
Þarfagreining er leið sem hefur í för með sér meiri upphafskostnað en dregur úr líkum á að keypt séu kerfi sem ekki mæta núverandi eða framtíðarkröfum stofnunarinnar á viðkomandi sviðum. Þarfagreiningar geta verið mjög mismunandi að umfangi, oft er mjög skýrt hvaða hlutverki þjónustan á að gegna og hægt að ná fram greiningu með fáum viðtölum.
Þarfagreining er til þess gerð að svara eftirfarandi spurningum
- Hvaða þjónustuþörf þarf vefurinn að uppfylla?
- Hverjir eru markhópar vefsins og hverjar er þarfir ólíkra hópa?
- Hver er tilgangur vefsins og hvaða hlutverki á hann að gegna?
- Hver verður virkni vefsins og hvernig er upplýsingum komið á framfæri?
Á grunni þarfagreiningar geta væntanlegir verksalar gert tilboð í verkið eða boðið fram hugbúnað/kerfi sem uppfyllir þarfir verkkaupa.
Á hverju byggist þarfagreining?
- Gögn í þarfagreiningu er aflað með viðtölum og oft myndun rýnihópa.
- Reynsla starfsmanna kemur að góðum notum en einnig er mikilvægt að leita eftir upplýsingum hjá væntanlegum notendum þjónustunnar.
Þarfagreining er mikilvægt að framkvæma til að ná að fullgera kostnaðaráætlun fyrir verkefnið. Þarfagreining er skilvirk leið til að mögulegir verksalir geti áttað sig á umfangi verksins og gert verkkaupa raunhæft tilboð í verkið.
Ef markmiðið með verkefninu er að gera ferla stofnunarinnar sjálfvirka og innleiða þannig þriðja eða fjórða stig rafrænnar þjónustu þarf þarfagreiningin að innihalda greiningu á innra verklagi og lýsingu á viðskiptaferlum.
Nánari upplýsingar um rafræna þjónustu:

