1.2 Þarfa- og markhópagreining

1.2.2 Finna þarf hvaða markhópar nota vefinn og aðlagast að þörfum þeirra

Með því að þekkja markhópinn, hegðun hans og væntingar á vefnum má tryggja að:

  1. Virkni og leiðarkerfi henti notendum og geri þeim auðvelt að nýta þjónustuna á þeirra forsendum - ekki forsendum stofnunarinnar/sveitarfélagsins.
  2. Framsetning upplýsinga á vefnum sé rökrétt fyrir notendur og að útitshönnun síðunnar sé viðeigandi.

Stofnunin/sveitarfélagið stuðlar þannig að því að þjónustan sé nýtt sem skyldi og að sú fjárfesting sem ráðist hefur verið í skili sér til baka.

Leitast má við að svara eftirfarandi spurningum

  • Hver er notandi vefsíðunnar?
  • Hvaða þjónustu nýtir hann sé á vefsíðunni?
  • Hvaða væntingar hefur notandinn?
  • Hvernig nýtir hann þjónustuna?

Aðferð

  • Viðtöl og rýnihópar - ekki draga ályktanir. Best er að ræða við væntanlega notendur og nota rýnihópa til að fá rétta mynd af dæmigerðum notendum og væntingum þeirra.
  • Fylgjast með notendum og skráning á hegðun þeirra - hvernig ferðast notendur um síðuna, eftir hverju leita þeir og hvernig nota þeir þjónustuna?

Ef raunin er sú að markhópar vefsíðunnar eru fleiri en einn og jafnvel ólíkir, t.d. "einstaklingar" og "fyrirtæki", er gott að láta hönnun og virkni vefsíðunnar taka tillit til þess. Upplýsingar um þessa aðferð er að finna í sérstakri færslu um markhópatengla.







Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica