1.1 Undirbúningur verkefna

1.1.1 Fyrstu skref - er þörf á þjónustunni?

Upplýsingar í þessum kafla nýtast fyrst og fremst við upphaf verkefna, á þessu fyrsta stigi í vefþróunarferlinu er verið að kanna hvort þörf sé á að breyta þjónustustigi stofnunarinnar og hvort hanna eigi vefþjónustu sem snýst um að auka eða bæta þjónustu til almennings. Lesa meira
 

1.1.2 Verk-, tíma- og kostnaðaráætlun

Þegar það liggur fyrir að verkefnið hafi ávinning í för með sér þarf að huga að skipulagningu þess og mælt er með að stuðst sé við aðferðir PRINCE2 verkefnisstjórnunarkerfisins. Ef það er ekki þekking til staðar innan stofnunar/sveitarfélags til að skilgreina verkefnið á faglegan hátt er mælt með að ytri ráðgjafar, óháðir væntanlegum birgjum, verði fengnir til þess. Lesa meira
 

1.1.3 Stöðufundir og fundargerðir

Undirbúningur og framkvæmd verkefna í upplýsingatækni er oft á tíðum flókinn. Aðferðir markvissar verkefnisstjórnunar má nýta til að stýra verkefninu. Þetta á einnig við um sérverkefni sem farið er í til að bæta núverandi þjónustustig. Lesa meira
 

1.1.4 Samstarf milli opinberra aðila

Stofnanir og sveitarfélög hafa mörg hver nú þegar ráðist í heimasíðugerð og ýmis sérverkefni á sviði rafrænnar stjórnsýslu. Áður en til framkvæmdar kemur er skynsamlegt að kanna hvort einhver rafræn þjónusta á vegum ríkisins sé nú þegar til staðar sem hægt er að nýta eða aðlaga og framkvæma verkefnið því með minni áhættu og kostnaði. Lesa meira
 






Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica