1.1 Undirbúningur verkefna

1.1.4 Samstarf milli opinberra aðila

Er sambærileg þjónusta nú þegar til staðar?

  • Gera má óformlega rannsókn á hvaða þjónustu aðrar stofnanir eru að bjóða. Sjálfsagt þykir að hafa samband við stofnanir og sveitarfélög vegna þess.
  • Jafnvel gefst kostur á að heyra hvernig framkvæmdin gekk fyrir sig, hverjir voru framkvæmdaaðilar og hvort þjónustan sé nýtt sem skyldi. Fljótlega koma í ljós snertifletir á milli verkefna og hvort samstarfsmöguleikar séu fyrir hendi.

Þjónusta er ekki til staðar en samstarfsmöguleikar þó fyrir hendi

  • Kanna hvort aðrar stofnanir eða sveitarfélög séu í hugleiðingum um að bæta vefþjónustu sína. Þannig má fyrirfram leita eftir samstarfsmöguleikum og ganga þannig úr skugga um hvort mögulegt sé að lágmarka kostnað vegna sértækrar forritunar.

Dæmi

Auðkenning Ísland.is

  • Ef væntanleg þjónusta hefur í för með sér að auðkenna þurfi notendur eru oft möguleikar til samstarfs, innskráningarlausn á vefnum Ísland.is er aðgengileg öðrum aðilum, nánari upplýsingar má fá á skrifstofu upplýsingasamfélagsins hjá forsætisráðuneytinu.

Ísland.is - örugg auðkenning







Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica