1.1 Undirbúningur verkefna
1.1.2 Verk-, tíma- og kostnaðaráætlun
Afmörkun verkefnis
- Áður en áætlun er gerð þarf að liggja skilmerkilega fyrir hvað eigi að framkvæma. Ekki er síður mikilvægt að skilgreina hvað eigi ekki að framkvæma.
- Ef nauðsynlegt er að gefa sér ákveðnar forsendur sem háðar eru óvissuþáttum er rétt að birta þær með þarfa- og kostnaðargreiningu.
Skilgreining markmiða
- Spyrja þarf hvaða ávinningi eigi að ná fram og skilgreina mælanleg markmið.
- Mælanleg markmið er forsenda þess að hægt sé að meta hvernig verkið gangi og hvort réttlætanlegt sé að halda því áfram.
Verkþættir og áfangaskil
- Með því að skilgreina verkþætti og áfangaskil er hægt að fá betri mynd af umfangi verkefnisins og hvenær helstu þættir þess eru unnir.
- Verkþáttum er oftast raðað upp í réttri röð sem á að endurspegla upphaf og endi verkefnisins. Tilgreint er hver vinnur að framgangi hvers verkþáttar, hvenær hann er unninn og umfang hans.
Skilgreining vinnumagns, tíma og kostnaðar
- Gera þarf kostnaðaráætlun fyrir öll stig vefþróunarinnar, frá innkaupum, þróun, hönnun og til rekstrar. Skipta verkinu niður í smærri verkliði.
- Brjóta þarf hvern verkáfanga niður í verkeiningar og kortleggja hvenær helstu þættir verða unnir. Gantt-rit má nota til að skilgreina verktíma. Oft er ekki hægt að hefja vinnu við einn verkþátt fyrr en öðrum er lokið. Með því að gera Gantt-rit er hægt að fá gott yfirlit yfir hvenær unnið er að tilteknum verkþáttum.
.
Gantt-rit (smellið til að fá stærri mynd)
Rekstur verkefnis til framtíðar - eignarhaldskostnaður
- Í áætluninni er rétt að leggja mat á og upplýsa ákvarðanatökuaðila um áætlaðan rekstrarkostnað fyrir verkefnið þegar framkvæmdartíma þess er liðinn enda slíkt lykilatriði í arðsemisútreikningi til framtíðar litið.
- Áætla hver sé líftími afurðar verkefnisins, t.d. þegar litið er til lagaumhverfis, þar spila inn í nokkrar breytur eins og breytt verkaskipting ríkis- og sveitarfélaga, tækniþróun svo eitthvað sé nefnt.
Þegar lagt er mat á eignarhaldskostnað (e. total cost of ownership) þarf að leggja mat á beinan og óbeinan kostnað. Hafa má eftirfarandi atriði í huga:
- Leyfiskostnaður
- Uppsetning og aðlögun
- Yfirfærsla eldri skjala/upplýsinga
- Kennsla og þjálfun starfsmanna
- Viðhald og uppfærslur
- Aðkeypt ráðgjöf og stuðningur
- Kaup eða endurnýjun vélbúnaðar
Sniðmát og dæmi
Stofnskjal verkefna (PID - Project Initiation Document)
Kostnaðaráætlun verkefna - dæmi


