1.1 Undirbúningur verkefna

1.1.3 Stöðufundir og fundargerðir

Framkvæmd verkefnis

Framvindufundir eru haldnir meðal aðila verkefnis til að fá yfirlit yfir stöðu og helstu úrlausnarefni. Á slíkum fundum má taka eftirfarandi atriði fyrir:

  1. Fundargerð síðasta fundar lögð fram til samþykktar.
  2. Yfirlit yfir stöðu og framvindu verkefnisins.
  3. Eru frávik frá verkefnisáætlun, þá þarf að greina ástæður þess, tíma og kostnað.
  4. Kostnaðarframvinda frá síðasta yfirliti.
  5. Fyrirsjáanlegir áhættuþættir eða vandamál, lýsing og mat á afleiðingum og viðbrögðum.
  6. Verkáætlun fyrir þá verkliði sem framundan eru.
  7. Önnur mál.

Gott ráð er að halda fundargerð á framvindufundum og dreifa henni til fundarmanna og ábyrgðaraðila verkefnis að honum loknum.

Lok verkefnis

Eftirfarandi gátlista má styðjast við þegar verkefnum er lokið.

  • Hefur ábyrgðaraðili samþykkt verkefnið og eru væntingar allra aðila uppfylltar.
  • Hefur verkefninu verið skilað eins og um var samið.
  • Hefur verkefnið leyst það sem leitast var eftir.
  • Býr verkkaupi yfir nógu mikilli þekkingu til að nýta lausnina.
  • Skilgreina þarf eftirfylgni með verkefninu.
  • Geta skilgreindir notendur notað lausnina.
  • Eru afleidd verkefni líkleg og hvaða tilgangi ættu þau að þjóna?

Ítarefni







Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica