1.5 Vefstefna

1.5.1 Gerð er vefstefna sem styður við opinbera stefnu stofnunar/sveitarfélags

Vefstefna

Vefstefna er skjal sem stjórnendur vefsins vinna markvisst eftir. Skjalið má birta opinberalega eða nota það sem vinnuskjal innanhúss.

Framtíðarsýn

Þegar vefstefna er skrifuð er hugað að framtíðarsýn fyrir vefinn. Þegar framtíðarsýn er gerð þarf að svara eftirfarandi spurningum: Hvernig á vefurinn að líta út eftir 2-3 ár, hvaða þjónustustig veitir hann og hvernig nýtist hann viðskiptavinum?

  • Ákveða þarf hvaða upplýsingar á að birta á vefnum og hvernig.
  • Hverjir eru markhópar vefsins og hvernig á að veita þeim þjónustu?

Undirmarkmið

Skilgreina þarf undirmarkmið sem stuðla eiga að framtíðarsýn. Undirmarkmið verða að vera mælanleg. Undirmarkmið vefstefnu geta verið:

  • Stefnt er að því að X fjöldi nýti sér þjónustuna yfir gefið tímabil.
  • Stefnt er að ná fram hagræðingu innan stofnunarinnar með fækkun afgreiðslna í gegnum eldri leiðir um X%.
  • Að þjónustukönnun leiði í ljós X% aukningu í ánægju viðskiptavina með þjónustuna.

Ef þau markmið sem sett eru í vefstefnunni eru ekki mælanleg verður óljóst hver árangurinn af þeim er. Þess vegna er nauðsynlegt að setja sér mælanleg markmið strax í upphafi og skilgreina beinar aðgerðir til að stuðla að því að þeim verði náð.

Beinar aðgerðir

Beinar aðgerðir eru skilgreindar í framhaldi af undirmarkmiðum til að stuðla að þeim sé náð og byggja enn frekar undir framtíðarsýn. Nauðsynlegt er að tímasetja beinar aðgerðir.

Eftirfarandi eru dæmi um beinar aðgerðir:

  • Aukið verði við þjónustu vefsins með auknum rafrænum umsóknum.
  • Stefnumótunarfundir verði haldnir árlega.
  • Vefurinn og þjónustan verði kynnt með greinarskrifum eða beinum auglýsingum.
  • Farið verði yfir vefmælingar mánaðarlega og þær bornar saman við fyrri mánuði.

Ýmsar vefstefnur







Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica