UT-dagurinn er 8. mars

UT-dagurinn lógó

Dagur upplýsingatækninnar 8. mars 2007

Forsætis- og fjármálaráðuneyti standa að undirbúningi UT-dagsins sem haldinn verður 8. mars nk. Lögð verður áhersla á mikilvægi upplýsingatækninnar sem verkfæris til að minnka skriffinnsku, spara tíma og auka hagræði. Ýmislegt er á döfinni í tengslum við UT-daginn. Á ráðstefnu sem haldin verður í Salnum í Kópavogi í tilefni dagsins verða kynnt nokkur af stærstu verkefnum ríkis og sveitarfélaga í rafrænni stjórnsýslu. Yfirskrift ráðstefnunnar er „Nýtum tímannNotum tæknina,“ og verður þar fjallað meðal annars um rafræn skilríki, vefinn Ísland.is og rafræn innkaup. Þann 3. mars verður gefið út efnismikið blað, UT-blaðið, þar sem einnig verður fjallað um nokkur mikilvæg verkefni í rafrænni stjórnsýslu.
Þetta er í annað skipti sem UT-dagurinn er haldinn, en sá fyrsti fór fram 24. janúar 2006. UT-dagurinn verður að þessu sinni haldinn í tengslum við sýninguna Tækni og vit 2007, fagsýningu tækni- og þekkingariðnaðarins, sem mun fara fram í Fífunni í Kópavogi dagana 8. - 11. mars. Gestum ráðstefnunnar í Salnum er jafnframt boðið á opnun Tækni og vits, sem hefst kl. 17:00. Ráðstefnan er öllum opin en tilkynna þarf þátttöku á skraning@appr.is .(Sjá fréttatilkynningu frá 26. febrúar)

Dagskrá UT-dagsins verður jafnframt send út beint á Netinu á vefnum www.ut.is.

 

Áhugaverðir viðburðir sem tengjast UT-deginum og sýningunni Tækni og vit:

3. mars     UT-blaðið gefið út.


7. mars      Opnun þjónustuveitunnar Ísland.is.


8. mars      Ráðstefnan Nýtum tímann – Notum tæknina sem haldin er af forsætis- og fjármálaráðuneyti í Salnum, Kópavogi.


9. mars      Ráðstefna um samskipti frumkvöðla og fjárfesta sem haldin er af Samtökum  iðnaðarins í Salnum, Kópavogi.


9. mars      Tilkynnt verður um afhendingu Vaxtarsprotans, sérstakra verðlauna til sprotafyrirtækja sem skilað hafa góðum árangri, kl. 18, í Gerðarsafni, Kópavogi.


8.-11. mars      Sýningin Tækni og vit í Fífunni, Kópavogi. Sýningin er skipulögð af AP almannatengslum og gefur breiður hópur sýnenda fyrirheit um góða sýningu. Fjármála- og forsætisráðuneyti verða meðal sýnenda og kynna m.a. vefinn Ísland.is og rafræn skilríki.







Útlit síðu: