Tækni og vit 2007 haldin í mars
Stórsýningin Tækni og vit 2007, fagsýning tækni- og þekkingariðnaðarins, verður haldin í Fífunni í Kópavogi dagana 8.?11. mars næstkomandi. Lögð verður áhersla á að kynna það sem hátækni- og þekkingarfyrirtæki hafa upp á að bjóða og skapa umræðu um þennan mikilvæga vaxtarbrodd í íslensku athafnalífi.
Meðal þátttakenda á sýningunni Tækni og vit 2007 verða tölvu- og upplýsingatæknifyrirtæki, fjarskiptafyrirtæki, fyrirtæki í líf- og lyfjatækni og mörg öflugustu iðntæknifyrirtæki landsins. Að auki munu menntastofnanir, ráðgjafa- og fjármálafyrirtæki og ýmsar opinberar stofnanir taka þátt í sýningunni, sem verður án efa einn stærsti viðburður sem haldinn hefur verið í íslenska hátækni- og þekkingarsamfélaginu.
Mikill vöxtur er í hátækni og þekkingariðnaði á Íslandi um þessar mundir. Þetta sést t.d. greinilega í upplýsingatæknigeiranum, þar sem íslensk fyrirtæki verða sífellt öflugri í útflutningi íslensks hugbúnaðar, í fjarskiptum, þar sem ný tækni mun valda straumhvörfum á næstu misserum, í líftækni og lyfjaþróun, þar sem Íslendingar standa framarlega og í iðnþróun, sem verður sífellt tæknivæddari hér á landi. Krafturinn sem býr í þessum ört vaxandi tæknigreinum mun verða í aðalhlutverki á Tækni og vit 2007.
Í tengslum við sýninguna verður UT-dagurinn haldinn 8. mars en það eru forsætis- og fjármálaráðuneyti sem standa að honum. Á UT-deginum verður haldin ráðstefna í Salnum í Kópavogi þar sem fjallað verður sérstaklega um rafræna þjónustu, rafræn skilríki og rafræn innkaup í þjónustu opinberra stofnana. Þetta er í annað sinn sem UT-dagurinn er haldinn en sá fyrsti var 24. janúar á þessu ári og vakti mikla athygli.
Jafnframt verða ýmsir aðrir viðburðir haldnir í tengslum við Tækni og vit 2007 og má þar nefna að framsæknustu fyrirtækjum landsins verða veittar viðurkenningar fyrir framlag sitt til tækniþróunar og atvinnusköpunar á viðburði sem haldinn verður í Listasafni Kópavogs ? Gerðarsafni 9. mars.
Vefur sýningarinnar, www.taekniogvit.is, hefur nú verið opnaður. Þar má finna allar nánari upplýsingar um framkvæmd Tækni og vits 2007.
AP sýningar standa að Tækni og vit 2007 í samstarfi við forsætisráðuneyti, fjármálaráðuneyti, iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti, Samtök iðnaðarins, Háskólann í Reykjavík, Orkuveitu Reykjavíkur og TM Software. AP sýningar, sem eru í eigu AP almannatengsla, stóðu m.a. að sýningunni Verk og vit, sem haldin var í mars 2006.
Nánari upplýsingar veitir:
Margit Elva Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Tækni og vits 2007, í síma 511 1230 eða farsíma 822 7167
