Sjálfsafgreiðsla stofnana eykur hagræði fyrir fyrirtæki og almenning
UT-dagurinn verður haldinn 8. mars 2007
Rafræn þjónusta, rafræn skilríki og rafræn innkaup verða meginumræðuefni UT-dagsins sem haldinn verður í annað sinn fimmtudaginn 8. mars 2007. Það eru forsætisráðuneyti og fjármálaráðuneyti sem standa að UT-deginum sem hefur þann tilgang að beina sjónum að hinum ýmsu möguleikum og tækifærum sem felast í nýtingu upplýsingatækninnar á Íslandi.
Á UT-deginum verður að þessu sinni lögð áhersla á sjálfsafgreiðslu í þjónustu opinberra stofnana og fjallað um lausnir á borð við rafræna þjónustu, rafræn skilríki og rafræn opinber innkaup. Slík þjónusta sparar fyrirtækjum og almenningi tíma og fyrirhöfn í samskiptum við opinberar stofnanir sem skilar sé m.a. í auknum gæðum og miklu hagræði í rekstri stofnana. Ýmsar hindranir hafa verið á vegi stofnana sem haft hafa hug á að koma á sjálfsafgreiðslu en unnið er að því að ryðja þeim helstu úr vegi.
Fyrsti UT-dagurinn var haldinn 24. janúar síðastliðinn og reyndist mikill áhugi vera fyrir viðburðinum. Var meðal annars haldin ráðstefna undir yfirskriftinni „Tæknin og tækifærin“ og fór þátttaka í henni fram úr björtustu vonum. Ákvörðun um að halda UT-dag aftur á næsta ári var byggð á þeirri jákvæðu reynslu sem fékkst af fyrsta UT-deginum (sjá ut.is).
UT-dagurinn verður haldinn í tengslum við sýninguna Tækni og vit 2007, fagsýningu tækni- og þekkingariðnaðarins, sem mun fara fram í Fífunni í Kópavogi dagana 8. - 11. mars. Einnig verður ráðstefna í Salnum í Kópavogi þar sem meðal annars verður fjallað um hvernig auka megi rafræna sjálfsafgreiðslu opinberra stofnana.
AP sýningar standa að sýningunni ásamt samstarfsaðilum. Upplýsingar um Tækni og vit má finna á www.taekniogvit.is.
Nánari upplýsingar veitir: Guðbjörg Sigurðardóttir, skrifstofustjóri í forsætisráðuneyti. Sími: 545-8470; netfang: gudbjorg.sigurdardottir@for.stjr.is
Reykjavík 11. október 2006
