UT-blaðið 2007 - forsíða

03.03.07 UT-blaðið 2007

UT-blaðinu 2007 var dreift með Morgunblaðinu laugardaginn 3. mars og er birt hér í heild sinni á rafrænu sniði. Jafnframt verða einstakar greinar blaðsins birtar hér á UT-vefnum. Lesa meira
 
Geir H. Haarde, forsætisráðherra

3. mars: Nýtum tímann - Notum tæknina

Engum dylst lengur hversu gott verkfæri upplýsingatæknin er til að bæta þjónustu og auka skilvirkni á öllum sviðum. Á síðustu árum hafa fyrirtæki og stjórnsýsla aukið jafnt og þétt þá þjónustu sem hægt er að sækja gegnum Internetið. Lesa meira
 
Guðbjörg Sigurðardóttir

Aðgengi allra að Vefnum

Í janúar 2006 lagði forsætisráðherra fyrir ríkisstjórn skýrsluna Aðgengi allra að vefnum sem unnin var af forsætisráðuneyti og félagsmálaráðuneyti. Skýrslan fjallar um hvernig opinberir aðilar geti mætt þörfum fatlaðra í samfélagi upplýsinga. Lesa meira
 
Sigrún Þorsteinsdóttir - SJÁ ehf.

Aðgengismál á Netinu mikilvæg

Netið er upplýsingaveita, þjónustustöð, verslun allt í senn. 80-90% vefsíðna eru ekki að fullu aðgengilegar öllum notendum, þ.m.t. fötluðum notendum. Oft gleymist að fyrir utan að vera siðferðilega rangt að halda úti óaðgengilegri vefsíðu, þá tapast miklar tekjur. Lesa meira
 
Haraldur og Sæmundur

Alla leið með rafrænum skilríkjum

Nýjustu upplýsingar sýna að íslenska þjóðin er mest nettengda þjóð í heimi. Rafræn samskipti manna á milli hafa aukist geysilega undanfarin ár og ný boðtæki tekið við af gömlum. Lesa meira
 
Fyrsti dreifmenntatíminn með nemendum

Dreifmenntun í Vestur-Barðastrandarsýslu

Dreifmenntun í skólum í Vestur-Barðastrandarsýslu er verkefni um nýtingu á upplýsingatækni og samvinnu grunnskóla í Vesturbyggð og Tálknafirði. Framkvæmd verkefnisins stóð yfir árin 2003 til 2006. Lesa meira
 
Halla Björg Baldursdottir

Einfaldara Ísland

Gátlisti vegna nýrra lagafrumvarpa, einföldun gildandi laga og reglna og bætt þjónusta hins opinbera á Netinu eru meðal verkefna til að ná markmiðum um einföldun stjórnsýslunnar á Íslandi. Lesa meira
 

Fjarskiptasamband Íslands við umheiminn

Stefnt er að því að nýr sæstrengur sem auki öryggi tenginga Íslands við umheiminn verði kominn í gagnið eigi síðar en haustið 2008. Hafinn er undirbúningur að fyrirkomulagi á eignarhaldi, fjármögnun og rekstri á vegum samgönguráðuneytisins. Lesa meira
 

Fjarskiptasjóður

Fjarskiptasjóður hefur 2,5 milljarða króna fyrir verkefni fjarskiptaáætlunar. Lesa meira
 
Jónmundur Guðmarsson, bæjarstjóri Seltjarnarness, til hægri, og Christer Mattson hjá INEC undirrita inngöngu bæjarins í samtökin

Fyrsta bæjarfélag Evrópu með 100% ljósleiðaratengingu

Framkvæmdir við lagningu ljósleiðara á Seltjarnarnesi hafa nú staðið yfir í um tvö ár en þessa dagana er verið að leggja lokahönd á verkið. Seltjarnarnesbær samdi í árslok 2004 við Orkuveitu Reykjavíkur um framkvæmdina. Lesa meira
 
Ásgerður Kjartansdóttir

Gagnvirkar umsóknir í menntamálaráðuneyti

Menntamálaráðuneyti afgreiðir fjöldann allan af styrkbeiðnum úr hinum ýmsu sjóðum. Í nóvember 2006 hófst tilraunaverkefni með gagnvirkar umsóknir í samvinnu við Rekstrarfélag stjórnarráðsbygginga og Hugvit. Lesa meira
 
Stafrænt námsefni

Gagnvirkt námsefni á Netinu

Stafrænt og gagnvirkt námsefni í íslensku, stærðfræði, ensku og dönsku er um þessar mundir í framleiðslu á vegum menntamálaráðuneytisins. Lesa meira
 
Gegnir - lógó

Hvað gerir gegnir.is fyrir þig?

Gegnir.is er samskrá um 200 íslenskra bókasafna þar sem nálgast má upplýsingar um safnkost þeirra og sjá upplýsingar um eigin stöðu, til dæmis útlán. Lesa meira
 
Hallur Magnússon

Íbúðalánasjóður á toppnum

Nýr og endurbættur vefur Íbúðalánasjóðs, www.ils.is, var valinn í fimm vefja úrslit Íslensku vefverðlaunanna 2006 í tveimur flokkum, Besti stofnunar- eða fyrirtækisvefurinn og Besti þjónustuvefurinn. Lesa meira
 
Bolli Þór Bollason

Ísland.is - Einfaldari stjórnsýsla

Auknar kröfur um hagræðingu og auðveldari aðgang að þjónustu opinberra aðila hafa kallað á stórfelldar umbætur og breytingar í stjórnsýslunni. Ísland.is er eitt mikilvægasta verkefnið í stefnunni um upplýsingasamfélagið og mikilvægur þáttur í þróun stjórnsýslunnar. Lesa meira
 
Guðfinna Harðardóttir

Íslenskt upplýsingasamfélag í tölum

Fyrirtæki og heimili hér á landi nota nær eingöngu hraðvirkar nettengingar. Árið 2006 notuðu níu af hverjum tíu fyrirtækjum hér á landi hraðvirka tengingu og hið sama gildir um 87% nettengdra íslenskra heimila. Lesa meira
 
Tryggvi Axelsson

Neytendastofa treystir öryggi og réttindi neytenda í viðskiptum

Hlutverk Neytendastofu er að treysta öryggi og réttindi neytenda í viðskiptum og annast framkvæmd laga um neytendavernd. Upplýsingamiðlun er þáttur í neytendavernd og virkt eftirlit Neytendastofu felst einnig í því að taka við fyrirspurnum og ábendingum ef lögum er ekki framfylgt. Lesa meira
 
Skjámynd af vef IMPRU

Ótal möguleikar til að miðla þekkingu

Impra nýsköpunarmiðstöð býður nýtt vefnámskeið sem er opið öllum á heimasíðu sinni, www.impra.is. Með hjálp tækni sem nefnd er þekkingarstraumur (streaming) er hægt að miðla efni í gegnum Netið til margra notenda samtímis hvar og hvenær sem er.

Lesa meira
 
Stefán Jón Friðriksson

Rafræn innkaup ríkisins

Ríkið hefur undanfarin ár einkum staðið fyrir þremur verkefnum í tengslum við rafræn innkaup. Þau varða þróun og innleiðingu rafræns innkaupakorts og rafræns markaðstorgs. Lesa meira
 

Rafræn skilríki

Fyrir rúmu ári fór að bera á innbrotum í netbanka hér á Íslandi. Í framhaldi af því hófu bankar og sparisjóðir í samstarfi við Auðkenni að skoða öryggislausnir til að auka öryggi í netbönkum. Lesa meira
 

Rafrænir launaseðlar spara 25 milljónir

Á síðustu árum hefur ríkið tekið í notkun nýtt fjárhags- og mannauðskerfi fyrir ríkissjóð, ráðuneyti og ríkisstofnanir. Er nú svo komið að allir A-hluta aðilar nýta mannauðshluta kerfisins. Lesa meira
 
Benedikt Benediktsson

Rafrænir lyfseðlar á Íslandi

Nú líður senn að innleiðingu rafrænna lyfseðla á Íslandi, en prófanir á slíku kerfi hafa staðið yfir síðan árið 2001 sem tilraunaverkefni á vegum heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins (HTR). Lesa meira
 
Árni Sigfússon

Rafrænt Reykjanes

Á örfáum árum hafa orðið miklar breytingar á íslensku samfélagi vegna þróunar á sviði upplýsinga- og fjarskiptatækni. Grunngerð samfélagsins mun áfram taka breytingum á upplýsingaöld þar sem menntun og þekking eru lykilatriði. Lesa meira
 

Reikningana rafrænt - pappírinn burt

Íslenskt samfélag er komið einu skrefi nær því að rafvæða öll viðskipti í landinu með því að skilgreina form fyrir einfalda rafræna reikninga. Fjársýsla ríkisins mun fyrir hönd hins opinbera taka á móti slíkum reikningum í vor. Lesa meira
 
Regína Ásvaldsdóttir

Reykjavík í einum smelli

Rafræn Reykjavík er einkasvæði íbúa á vef Reykjavíkurborgar (www.reykjavik.is) þar sem hægt er að sækja um þjónustu borgarinnar og möguleiki er á gagnvirkum samskiptum milli íbúa og borgaryfirvalda. Lesa meira
 

Sjálfsafgreiðsla borgaranna sparar þúsundir vinnudaga á ári

Upplýsingatækniverkefni dóms- og kirkjumálaráðuneytis undanfarin ár eru mörg en hér verður aðeins gerð grein fyrir ákveðnum verkefnum Þjóðskrár og verkefni um rafrænt þjónustulag sem ráðuneytið hefur haft forgöngu um. Lesa meira
 
Haraldur A. Bjarnason

Skilríki.is - allt um rafræn skilríki

Á skilríki.is verður að finna allar helstu upplýsingar um rafræn skilríki. Vefurinn verður opnaður í nýjum búningi 8. mars næstkomandi. Hann er hugsaður fyrir alla þá sem hafa áhuga á rafrænum skilríkjum og/eða vilja nýta sér þau: almenning, fyrirtæki og opinbera aðila. Lesa meira
 
Sveinn Ólafsson

Stærsta upplýsingaveita á Íslandi

Landsaðgangur að gagnasöfnum og rafrænum tímaritum, hvar.is, er stærsta upplýsingaveita á Íslandi. Þar er aðgangur fyrir alla sem eru staddir á landinu að efni yfir 14.000 tímarita í fullum texta auk margs konar efnis af öðru tagi. Lesa meira
 
Valgerdur Gunnarsdottir

Tímapantanir á Vefnum - Heilsugæslan í Glæsibæ

Nú er í undirbúningi sá möguleiki að fólk í Voga- og Heimahverfi geti pantað tíma í heilsugæslunni gegnum Netið. Hægt verður að panta viðtöl hjá lækni ásamt annars konar þjónustu, svo sem mæðra- eða ungbarnavernd. Lesa meira
 
Þorgerður Ragnarsdóttir og Þórólfur Rúnar Þórólfsson

Viðskiptavinum spöruð sporin

Sérstök áhersla verður lögð á þróun rafrænnar þjónustu hjá Tryggingastofnun á árinu 2007 með einkunnarorðin þjónusta, hagræðing og öryggi að leiðarljósi. Stefnt er að því að viðskiptavinir geti sinnt flestum erindum sínum við Tryggingastofnun á Netinu í stað þess að leggja leið sína á þjónustustaði. Lesa meira
 

Þjónustusíðan þín á skattur.is

Það hefur verið sagt að það sé bara tvennt sem sé öruggt í þessum heimi og það séu skatturinn og dauðinn. Segja má að annað af þessu hafi orðið öllu bærilegra á undanförnum árum. Lesa meira
 
Bergljót Þórðardóttir

Þjónustuvefur LÍN

Þjónustuvefur LÍN hefur verið í hraðri uppbyggingu síðustu fjögur ár og gert sjóðnum kleift að bæta þjónustuna og mæta mikilli fjölgun lánþega án aukins rekstrarkostnaðar. Vefurinn hefur bæði stytt boðleiðir og aukið öryggi í öllum samskiptum. Lesa meira
 
Fjóla Agnarsdóttir

Þjónustuveitan Ísland.is opnuð 7. mars

Ísland.is er upplýsinga- og þjónustuveita með heildstæðum upplýsingum um þá þjónustu sem í boði er á vegum ríkis og sveitarfélaga. Þar verður notendum vísað á upplýsingar og þjónustu sem til staðar eru og á nánast öll eyðublöð sem eru á vefjum ríkisstofnana í þeim efnisflokkum sem vefurinn nær til. Lesa meira
 
Spjall

Öruggar spjallrásir með rafrænum skilríkjum

Spjall á Netinu er vinsælt tómstundagaman hjá ungu fólki – en eins og komið hefur fram í fjölmiðlum undanfarið er það þó ekki alveg hættulaust. Dæmi eru um að fullorðnir villi á sér heimildir og geri þannig tilraun til þess að komast í samband við börn. Lesa meira
 






Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica