Ísland.is - Einfaldari stjórnsýsla
Höfundur: Bolli Þór Bollason, ráðuneytisstjóri, forsætisráðuneyti.
Auknar kröfur um hagræðingu og auðveldari aðgang að þjónustu opinberra aðila hafa kallað á stórfelldar umbætur og breytingar í stjórnsýslunni. Ísland.is er eitt mikilvægasta verkefnið í stefnunni um upplýsingasamfélagið og mikilvægur þáttur í þróun stjórnsýslunnar.
Á vegum forsætisráðuneytisins hefur verið þróuð þjónustuveitan Ísland.is. Hún er samstarfsverkefni ríkisstofnana, ráðuneyta og sveitarfélaga og eitt mikilvægasta verkefnið í stefnu ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið fyrir árin 2004-2007, Auðlindir í allra þágu. Markmiðið er að Ísland.is verði eins konar lykill að íslensku samfélagi þar sem almenningur og fyrirtæki geti nálgast hagnýtar upplýsingar, afgreitt sín erindi og fengið aðgang að málum og upplýsingum sem varða samskipti þeirra við opinbera aðila hér á landi. Í fyrstu útgáfu næst stór áfangi að þessu markmiði og verður vefurinn þróaður áfram á næstu árum.
Styður og styrkir stefnumörkun
Ísland.is styður og styrkir stefnumörkun stjórnvalda um einföldun í ríkisrekstri og verkefni sem miða að einföldun stjórnsýslunnar.
- Ísland.is styður við tvö meginmarkmið stefnunnar um Nýskipan í ríkisrekstri. Annars vegar að skipulag og starfsemi ríkisins verði með þeim hætti að ríkið geti sinnt skyldum sínum við almenning á eins hagkvæman, skjótvirkan og árangursríkan hátt og kostur er. Hins vegar að opinber þjónusta verði svo skilvirk að hún gefi íslenskum fyrirtækjum forskot í vaxandi alþjóðlegri samkeppni.
- Ísland.is styður einnig við stefnu um Árangursríkan ríkisrekstur en þar er mjög skýrt fjallað um hagnýtingu upplýsingatækni. Þar kemur fram að stefnt er að því að íslenska ríkið verði í fremstu röð Evrópuríkja í nýtingu rafrænnar stjórnsýslu í starfsemi sinni.
- Forsætisráðuneytið hefur forgöngu um verkefnið Einfaldara Ísland sem er ætlað að leita leiða til að einfalda stjórnsýsluna. Í því verkefni er litið á Ísland.is sem eitt helsta tækið til að einfalda og samræma stjórnsýsluna með þarfir almennings í huga.
Verkefnisstjórn um rafræna stjórnsýslu, sem hefur það hlutverk að fylgja eftir stefnu stjórnvalda á sviði rafrænnar stjórnsýslu, hefur komið að stefnumótun fyrir Ísland.is og hefur skrifstofa upplýsingasamfélagsins umsjón með gerð þjónustuveitunnar.
Ávinningur
Stærsti ávinningurinn með Ísland.is verður bætt og auðveldara aðgengi að opinberri þjónustu, lægri kostnaður þeirra sem þurfa að nota þjónustuna og aukin gæði hennar. Reynslan hefur sýnt að Íslendingar eru duglegir að nota þá gagnvirku þjónustu sem þegar er í boði á Íslandi. Hagræði og ávinningur af rafrænni þjónustu getur verið gríðarlega mikill eins og þegar hefur sýnt sig, til dæmis með tilkomu heimabanka og rafrænna skila skattframtala. Það má því búast við að almenningur og fyrirtæki muni í ríkum mæli nýta sér þær upplýsingar og þá rafrænu þjónustu sem Ísland.is býður upp á og uppskera þannig aukin þægindi og fljótvirkari boðleiðir í samskiptum sínum við opinbera aðila. Það er jú meginmarkmið Ísland.is.

