UT-dagur 2009

Dagur upplýsingatækninnar - UT- dagurinn 19. maí 2009

UT-dagurinn lógóUpplýsingatækni til endurreisnar
Bætt þjónusta - lægri kostnaður

Dagur upplýsingatækninnar, UT-dagurinn, var haldinn þriðjudaginn 19. maí 2009. Af því tilefni var boðað til ráðstefnu þar sem fjallað var um hvernig upplýsingatæknin gæti nýst opinberum stofnunum, fyrirtækjum og almenningi í því endurreisnarstarfi sem fyrir höndum er í íslensku samfélagi.

Yfirskrift ráðstefnunnar var „Upplýsingatækni til endurreisnar" og var sérstaklega rakið hvernig upplýsingatækni geti hvort tveggja lækkað kostnað og aukið þjónustu, sé rétt að málum staðið. Kynnt voru upplýsingatækniverkefni þar sem góður árangur hefur náðst og sagt frá aðferðafræði sem beita má til að meta kostnað og ávinning af slíkum verkefnum.

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra ávarpai ráðstefnuna. Meðal fyrirlesara voru Guðbjörg Sigurðardóttir, skrifstofustjóri í forsætisráðuneyti, sem ræddi meginþema ráðstefnunnar þ.e. hvernig upplýsingatæknin nýtist til endurreisnar, Jón Óskar Hallgrímsson, hagfræðingur hjá PricewaterhouseCoopers, sem sýndi hvernig minnka megi fyrirhöfn borgara við að sækja opinbera þjónustu, og Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, og Halldór Halldórsson, framkvæmdastjóri LRH, sem sögðu frá því hvernig veita megi meiri þjónustu með minni tilkostnaði. Þá kynnti Halla Björg Baldursdóttir, verkefnastjóri í rafrænni stjórnsýslu hjá forsætisráðuneyti, verkfærakistu fyrir rafræna stjórnsýslu, Hjálmar Gíslason, framkvæmdastjóri Data Market, sagði frá verðmætum sem liggja í opinberum gögnum, Kristján G. Guðmundsson, yfirlæknir hjá Heilsugæslunni í Glæsibæ, ræddi hvernig nýta megi Netið við heilbrigðisþjónustu og Maríanna Friðjónsdóttir, framkvæmda- og leikstjóri, sýndi hvernig Facebook og önnur samskiptasamfélög geti nýst við upplýsingamiðlun og kynningarstarf. Lokaorð flutti Sigrún Jóhannesdóttir, forstjóri Persónuverndar.

Þetta var í fjórða sinn sem forsætisráðuneytið heldur UT-daginn og ráðstefnu í tengslum við hann. Auk forsætisráðuneytis forsætisráðuneytis, stóðu Félag forstöðumanna ríkisstofnana, Samtök upplýsingatæknifyrirtækja og Skýrslutæknifélag Íslands að ráðstefnunni að þessu sinni.

Gögn frá ráðstefnunni og myndir er að finna hér á vefnum.







Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica