UT-dagur 2010

Dagur upplýsingatækninnar - UT- dagurinn 20. maí 2010

Dagur upplýsingatækninnar, UT-dagurinn 2010, var haldinn 20. maí. Að þessu sinni voru haldnar tvær ráðstefnur þennan dag og í dagskrárlok voru í fyrsta skipti afhent upplýsingatækniverðlaun Skýrslutæknifélagsins.

Fyrir hádegi stóð Stofnun í stjórnsýslufræðum og Félag forstöðumanna ríkisstofnana að ráðstefnu sem helguð er nýsköpun í opinberum rekstri. Eftir hádegi var ráðstefnan „Horft til framtíðar“ sem helguð var umbótum og framsæknum verkefnum í opinberri stjórnsýslu og upplýsingatækniiðnaði. Að henni stóðu forsætisráðuneytið, Skýrslutæknifélagið, Samtök upplýsingatæknifyrirtækja, Félag forstöðumanna ríkisstofnana og Stofnun stjórnsýslufræða.

Á ráðstefnunni „Horft til framtíðar“ áttu upplýsingatækniiðnaðurinn og stjórnsýslan stefnumót þar sem rætt var um hvað læra megi af þeim fyrirtækjum sem náð hafa góðum árangri í útflutningi á hugbúnaði og hvað stjórnvöld geta gert til að hlúa að áframhaldandi uppbyggingu iðnaðarins. Einnig var fjallað um breytingar á skipulagi upplýsingatækni- og umbótamála hjá ríkinu, Sóknaráætlun 20/20 og upplýsingatækniverkefni sem skilað hafa góðum árangri í opinberri stjórnsýslu.

Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, setti ráðstefnuna og Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, afhenti Friðriki Skúlasyni upplýsingatækniverðlaunin í lok dagskrárinnar.

Þetta var í fimmta sinn sem forsætisráðuneytið skipulagði Dag upplýsingatækninnar og ráðstefnu í tengslum við hann. Ráðstefnan var haldin  í Salnum Kópavogi.

UT-dagurinn 2010UT-dagurinn 2010








Útlit síðu: