UT-dagur 2008
Netríkið Ísland
Dagur upplýsingatækninnar 7. maí 2008
Netríkið Ísland í brennidepli á UT-deginum
Ný stefna ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið kynnt 7. maí
Dagur upplýsingatækninnar var haldinn 7. maí 2008 á vegum forsætisráðuneytisins. Á ráðstefnu sem haldin var á Hilton Nordica af því tilefni var fjallað um mikilvæg verkefni sem fyrirhugað er að hrinda í framkvæmd á næstu árum. Yfirskrift ráðstefnunnar var Netríkið Ísland sem er jafnframt kjörorð nýrrar stefnu um upplýsingasamfélagið sem kynnt var á ráðstefnunni.
Stefnan er vegvísir hins opinbera að þróun rafrænnar þjónustu og nýtingu upplýsingatækni á árunum 2008-2012 en þetta er í þriðja sinn sem stjórnvöld gefa út slíka stefnu. Geir H. Haarde forsætisráðherra opnaði ráðstefnuna en þar var Netríkið Ísland í brennidepli og sagt frá nokkrum lykilverkefnum stefnunnar á komandi árum. Meðal annars var gerð grein fyrir stöðu verkefnis um rafræn skilríki, fjallað um rafrænar sveitarstjórnarkosningar, byltingarkenndar breytingar í þjónustu Tryggingastofnunar, framtíð upplýsingatækni í menntun, upplýsingamiðstöð heilbrigðismála og kynnt áform um þróun þjónustuveitunnar Island.is. Alls voru flutt ellefu erindi um nokkur af helstu verkefnum hins opinbera á sviði rafrænnar stjórnsýslu á UT-ráðstefnunni.
Þetta var í þriðja sinn sem dagur upplýsingatækninnar var haldinn og boðað var til ráðstefnu af því tilefni. Ráðstefnan var haldin í samvinnu við Skýrslutæknifélag Íslands. Þann 9. maí var UT-blaðið gefið út og því dreift sem fylgiblaði við 24 stundir.

