Um stafrænt frelsi
Frelsi einstaklingsins hefur í gegnum árin verið mikilvægur þáttur í þróun allra samfélaga. Þegar þátttaka í samfélaginu færist yfir á stafrænt form má ekki gleyma að viðhalda þessu sama frelsi einstaklingsins. Í þessari handbók má finna fræðsluefni um stafrænt frelsi í öllum sínum myndum frá frjálsum hugbúnaði til opinna staðla til frjálsrar þekkingar. Handbókin svarar ýmsum spurningum, telur upp nokkur frjáls verkefni og reynir að gefa góða yfirsýn yfir það hvernig má viðhalda frelsi okkar í stafrænum heimi.
Allt efni handbókarinnar um stafrænt frelsi er gefið út undir Creative Commons, Attribution-Share Alike leyfi. Öllum er frjálst að nýta efnið í sínum verkefnum svo framarlega sem þau verk séu gefin út undir svipuðu leyfi og að upprunalegs höfundar sé getið.
Allar ábendingar, breytingar og viðbætur við efnið eru vel þegnar. Með þinni hjálp getum við í sameiningu látið þessa handbók um stafrænt frelsi betur þjóna íslensku þjóðfélagi.
Allt efni þessarar handbókar er gefið út undir Creative Commons Attribution-Share Alike 3.0 Unported leyfinu.

