Umfjöllun

Er frjáls og opinn hugbúnaður verri hugbúnaður?

Frjáls og opinn hugbúnaður er samtvinnaður viðskiptalíkani alþjóðlegra stórfyrirtækja. Fyrirtækin leggja mikla peninga og verðmætan tíma í áframhaldandi þróun og viðhald hugbúnaðarins sem eykur gæði hugbúnaðarins og brýtur á bak mýtuna um að hugbúnaðurinn sé verri en séreignarhugbúnaður. Lesa meira
 

Skilgreining á frjálsum og opnum hugbúnaði

Frjáls hugbúnaður gefur notendum hans frelsi til að nota, kynna sér, aðlaga, dreifa og bæta hugbúnaðinn eftir eigin þörfum. Opinn hugbúnaður höfðar til fyrirtækja og felur í sér lýðræðislega þróun á hugbúnaði. Lesa meira
 

Læsingar

Notendur standa frammi fyrir þeirri hættu að læsast inni í ákveðnum hugbúnaðarlausnum. Það getur verið kostnaðarsamt að brjótast úr viðjum læsingar, sérstaklega ef fleiri aðilar eru einnig háðir vörunni. Forsjálni og notkun frjáls hugbúnaðar og opinna staðla getur komið í veg fyrir að notendur læsist inni í ákveðinni hugbúnaðarlausn. Lesa meira
 

Öryggi frjáls og opins hugbúnaðar

Enginn hugbúnaður er gallalaus, hvorki séreignarhugbúnaður né frjáls og opinn hugbúnaður. Öryggissérfræðingar skiptast í tvær fylkingar hvað varðar öryggi hugbúnaðar. Önnur fylkingin telur óljóst öryggi stuðla að öruggari hugbúnaði en hin fylkingin telur að opið ferli leiði betur til þess. Lesa meira
 

Frjáls og opin hugbúnaðarleyfi

Frjáls og opinn hugbúnaður er gefinn út undir sérstökum hugbúnaðarleyfum þar sem höfundur hugbúnaðarins afsalar sér réttindum sínum til þess að gefa notendum frelsið sem fylgir frjálsum og opnum hugbúnaði. Þekktustu leyfin eru GPL og BSD leyfin.

Lesa meira
 

Frjáls og opinn hugbúnaður í öðrum löndum

Frjáls og opinn hugbúnaður er notaður af opinberum stofnunum um allan heim. Nágrannalönd Íslands hafa verið að fikra sig í áttina að frjálsari hugbúnaðarnotkun og önnur Evrópulönd hafa gefið út stefnur um notkun frjáls og opins hugbúnaðar. Lesa meira
 






Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica