Listi yfir staðla

Opin og stöðluð skráarsnið fyrir skrifstofuskjöl

Stærstur hluti skjala í nútímasamfélagi er vistaður, meðhöndlaður og birtur á stafrænu formi. Til þess að tryggja langtímavarðveislu skjala og aðgengi án þess að mismuna notendum vegna stýrikerfa eða annarra tæknilegra atriða er mikilvægt að nota opin og stöðluð rafræn skráarsnið.

Staðlastofnanir hafa samþykkt nokkur mismunandi opin skjalasnið, hvert þeirra hannað með ákveðið form af skjali í huga. Þessi skráarsnið eru mun hentugri heldur en óstöðluð skráarsnið eins og til dæmis hefðbundnu Microsoft skráarsniðin (sem hafa endingarnar .doc, .xls, .ppt/.pps) því þau eru líklegri til þess að vera opnanleg í framtíðinni. Skjöl vistuð á óstöðluðu ívafsmáli (e. markup language) eins og LaTeX og ýmsir kvikutextar (e. wiki text) eru nothæf þrátt fyrir að byggja á óstöðluðum aðferðum vegna þess að grunnskráin er vistuð sem hrein textaskrá.

Lokaskjöl

Endanlega útgáfa skjala, það er útgáfa á skjölum sem lesendum er ekki ætlað að breyta, til dæmis á vefsíðum, í stafrænum skjalageymslum og öðrum miðlum er hentugast að nota skjalasnið sem hafa verið útbúin sérstaklega með það markmið í huga. Þó svo að unnið hafi verið með skjalið á öðru sniði sem leyfir breytingar er gott að temja sér að vista lokaútgáfuna sem skjal á stöðluðu lokaskjalssniði.

Portable Document Format (PDF)

Opinn ISO staðall fyrir rafræn skjöl sem notendur geta skipst á og skoðað óháð umhverfinu sem þau eru búin til eða skoðuð í. PDF skjalasniðið er því tilvalið til þess að birta og dreifa endanlegum útgáfum af skjölum. Skráarending PDF skjala er pdf. Ýmsir aðrir ISO staðlar hafa verið gerðir eða munu verða gerðir út úr PDF lýsingunni.

  • PDF/A
    Opinn staðall sem lýsir rafrænu skjalasniði fyrir langtímavarðveislu skjala í fyrirtækja- og stofnanaumhverfi.
  • PDF/UA
    Lýsing á rafrænu skjalasniði sem stuðlar að betra aðgengi fatlaðra og annarra hópa að skjölum með því að auðvelda notkun tóla eins og skjálestrarforrita. PDF/UA er enn í vinnslu.
  • PDF/H
    Ekki eiginlegur staðall heldur leiðbeiningar varðandi notkun PDF fyrir varðveislu og vernd sjúkraskráa. PDF/H er enn í vinnslu.
  • PDF/X
    Samansafn nokkurra opinna ISO staðla sem lýsa rafrænu skjalasniði fyrir myndefni og prentun.
  • PDF/E
    Opinn ISO staðall sem lýsir rafrænu skjalasniði útbúið fyrir tæknileg skjöl.

Breytanleg skjöl

Á meðan unnið er með skjöl, áður en þau eru gefin út, er gott að nota skjalasnið sem er útbúið með breytanleika í huga. Þessi skjalasnið eru ekki hentug fyrir lokaútgáfu en geta auðveldað samvinnu og einfaldað breytingar á skjölunum þar til að lokaútgáfu kemur. Það eru til mörg skjalasnið fyrir breytanleg skjöl og tvö af þeim hafa orðið að alþjóðlegum stöðlum.

Open Document Format (ODF)

Opinn ISO staðall fyrir rafræn skjöl sem notendur geta skipst á og unnið með. ODF skjalasniðið byggir á XML ívafsmálinu og er tilvalið fyrir breytanleg skjöl, það er ekki endanlega útgáfu heldur óbirta útgáfu sem enn er verið að vinna í. Ríkisstjórnir margra landa hafa gefið út yfirlýsingu um stuðning við ODF í opinberri stjórnsýslu. Skráarendingar ODF skjala eru: odt (textaritill), ods (töflureiknir), odp (glærusýning), odg (myndvinnsla) og odf (stærðfræðijöfnur).

Office Open XML (OOXML)

Opinn ECMA og ISO staðall fyrir rafræn skjöl sem notendur geta skipst á og unnið með. OOXML byggir á XML ívafsmálinu og byggir á Microsoft 2008 skrifstofuvöndlinum (Microsoft Office 2008). OOXML gegnir sama tilgangi og ODF. Eftir að OOXML náði nægilegu fylgi í kosningum á vegum ISO vinna samtökin að því að taka upp OOXML sem opinn ISO staðal. Ríkisstjórnir nokkurra landa, þar á meðal Suður-Afríku, Venesúela og Indlands, hafa mótmælt kosningunni og upptöku OOXML sem ISO staðals. Skráarendingar OOXML skjala eru: docx (textaritill), xlsx (töflureiknir) og pptx/ppsx (glærusýning).

Skjöl byggð á ívafsmáli

Ívafsmál (e. markup language) eru nytsamleg við gerð skjala. Þess háttar skjöl eru vistuð sem hreinn texti þar sem útlit og uppsetning textans er merkt með sérstökum hætti. Skjöl byggð á ívafsmáli eru send í gegnum ákveðinn þýðanda sem getur haft snið sem frálagsmál, til dæmis PDF fyrir lokaútgáfur. Hægt er að stilla þýðandann til þess að skjölin fylgi ákveðnum forsniðum og þannig má á auðveldan hátt ná fram sama útliti á öllum skjölum án þess að höfundar þurfi að læra hvaða stafaletur og stærð á að nota.

HyperText Markup Language (HTML)

Opinn W3C staðall fyrir ívafsmál stiklutexta (e. hypertext) sem hefur náð gífurlegri útbreiðslu á veraldarvefnum. HTML er tilvalið og nær ávallt notað fyrir vefsíður. HTML skjöl geta innihaldið hreinan texta, fyrirsagnir, myndir, tengla og fleira sem gerir HTML að mest notaða skjalasniðinu á veraldarvefnum. Mikið af tólum, sniðum, forritunarmálum og fleiru bjóða upp á HTML sem frálagsmál (e. output language). Skráarendingar HTML skjalasniða (og vefsíðna) eru annaðhvort html eða htm.

DocBook

Opinn OASIS staðall fyrir skjölun og leiðbeiningar. DocBook er merkingarívafsmál sem byggir á XML og var upphaflega notað fyrir tæknilegar leiðbeiningar. DocBook er tilvalið fyrir gerð leiðbeininga og tæknilegra skjala. DocBook skjöl geta verið flutt yfir í og birt meðal annars sem HTML skjöl og PDF skjöl. Skráarendingar DocBook skjalasniða er dbk eða xml.









Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica