Hoppa yfir valmynd

Greinargerðir ráðuneyta um málefnasvið og málaflokka

Í greinargerðunum er fjallað um áherslur og markmið til næstu fimm ára fyrir þau 35 málefnasvið og 105 málaflokka sem fjármálaáætlun tekur til. Um stefnumótun málefnasviða og málaflokka gildir ákvæði 20. gr. laga um opinber fjármál sem stuðlar að heildstæðri áætlanagerð fyrir tímabil fjármálaáætlunar.

Um framsetningu og framkvæmd stefnumótunar fyrir öll málefnasvið eiga við sömu sjónarmið þrátt fyrir ólíkt eðli og umfang starfsemi. Í því samhengi skal lögð áhersla á skýrleika, einfaldleika og gegnsæi, sbr. lög um opinber fjármál. Framsetning stefnu málefnasviða og málaflokka er því samræmd og umfjöllun um efnisþætti eðlislík. Slíkt auðveldar yfirsýn og einfaldar samanburð þvert á málefnasvið og málaflokka.

Gildandi fjár­málaáætlun til fimm ára var samþykkt á Alþingi 9. júní 2023. Áætluninni fylgdi greinargerð um áherslur og markmið á tímabilinu fyrir þau málefnasvið og málaflokka sem fjármálaáætlun tekur til, sbr. þingskjal 1398 á 153. löggjafarþingi, bls. 144–422 og birt er á vefsvæði fyrir stefnumótun málefnasviða. Sú stefnumörkun sem þar lá til grundvallar stendur að miklu leyti óbreytt og í greinargerðum með þessari áætlun er stefnumótun málefnasviðanna 35 kynnt og sjónum beint að þeim breytingum sem kunna að hafa orðið.

Uppbygging málefnasviða

  • Ábyrgð hlutaðeigandi ráðherra er tilgreind í upphafi málefnasviðs, einnig þar sem málefnasvið skarast við ábyrgðarsvið tveggja eða fleiri ráðherra. Í slíkum tilfellum móta ráðherrar í samráði stefnu með hliðsjón af því stjórnarmálefni sem þeim tilheyrir.
  • Fjárhagsleg þróun málefnasviðs og viðkomandi málaflokka er birt fyrir tímabilið 2022–2024. Eftir atvikum hafa verið gerðar aðlaganir á framsetningu útgjalda ársins í þeim tilfellum sem viðföng hafa verið flutt í heild sinni milli málefnasviða eða málaflokka.
  • Framtíðarsýn fyrir málefnasvið lýsir þeim framförum sem ætlað er að ná til lengri tíma, sem dæmi um aukið virði fyrir samfélagið.
  • Meginmarkmið fyrir málefnasvið lýsir tilætluðum áhrifum af starfsemi stjórnvalda, ráðuneyta og ríkisaðila fyrir samfélagið, sem dæmi um hag fyrir borgara og skattgreiðendur – og styður jafnframt við framtíðarsýn.
  • Töluleg umfjöllun dregur fram helstu lykilatriði eða breytingar á fimm ára fjárhagsramma málefnasviðs. Þá eru tilgreindar fjárheimildir málefnasviðsins á tímabili fjármálaáætlunar.
  • Helstu áherslur lýsa forgangsmálum á málefnasviðinu á tímabili áætlunarinnar.

Uppbygging málaflokka

  • Verkefnum hvers málaflokks er lýst í byrjun, þ.e. hvaða málefni/verkefni falla þar undir.
  • Helstu áskoranir í málaflokknum eru tíundaðar fyrir tímabil áætlunarinnar og gerð grein fyrir tækifærum til að mæta þessum áskorunum. Lögð er áhersla á að gera grein fyrir breytingum frá gildandi fjármálaáætlun en að öðru leyti er vísað til umfjöllunar í þingskjali 1398 á 153. löggjafarþingi og á vefsvæði fyrir stefnumótun málefnasviða. Þá er áhersla á að draga fram áskoranir út frá kynja- og jafnréttissjónarmiðum, sbr. stöðuskýrslu um kortlagningu kynjasjónarmiða. Mörg af þeim tækifærum sem tíunduð eru birtast síðar sem verkefni í greinargerð um viðkomandi málaflokk í fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár.
  • Markmið fyrir hvern málaflokk lýsa hreyfingu sem ætlað er að ná fram og styðja við meginmarkmið málefnasviðs. Markmiðin eru talin upp í sérstakri töflu en ítarlegri lýsingu á markmiðum og mælikvörðum hvers málaflokks má finna í fjármálaááætlun 2023-2027, sbr. 894. mál 153. þings.
  • Mælikvarðar um árangur mæla framgang markmiðs, þ.e. ólíka þætti árangurs, skilvirkni og þjónustu, með hlutlægum hætti. Mælikvörðunum er þannig ætlað að mæla aukið samfélagsvirði, sjáanlegar jákvæðar breytingar eða bætt gæði fyrir samfélagið. Þar sem það er mögulegt er leitast við að mæla endanleg áhrif sem sóst er eftir.
  • HM-dálkur lýsir tengingu mælikvarða við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna, sbr. umfjöllun hér að aftan.

Áherslur til grundvallar stefnumótun

Áherslur ríkisstjórnarinnar, sem gerð er grein fyrir í stjórnarsáttmála, eru grundvöllur allrar umfjöllunar um málefnasvið og málaflokka og mótun stefnu fyrir þau. Þannig ættu áherslur í stjórnarsáttmála að endurspeglast í helstu áherslum hvers málefnasviðs og í markmiðum og mælikvörðum hvers málaflokks.

Jafnframt mynda sex velsældaráherslur, sem saman endurspegla stefnu ríkisstjórnarinnar og horfa til framtíðar á mikilvægum sviðum, grundvöll að umfjöllun á málefnasviðum. Vísanir til einstaka velsældaráherslna er að finna í greinargerðum langflestra málefnasviða. Nánar er fjallað um velsældaráherslurnar á vef Stjórnarráðsins stjornarradid.is/velsaeld.

Stefna til meðallangs tíma

Stefnumörkun í fjármálaáætlun byggist á hagstjórnarmarkmiðum og stefnumörkun í opinberum fjármálum sem sett voru fram í fjármálastefnu 2022–2026 og samþykkt á Alþingi 24. febrúar 2022. Líkt og í gildandi fjármálaáætlun er gert ráð fyrir óútfærðum ráðstöfunum til þess að bæta afkomu ríkissjóðs á næsta ári og draga úr þenslu. Jafnframt er gert ráð fyrir frekari ráðstöfunum á síðari hluta tímabilsins svo hægt sé að ná settum markmiðum í stefnunni. Í áætluninni hefur þessum ráðstöfunum ekki verið dreift niður á einstök málefnasvið að svo stöddu en ráðstafanir fyrir næsta fjárlagaár mun þurfa að útfæra við vinnslu fjárlagafrumvarpsins fyrir árið 2025. Útfærsla þeirra kann að hafa áhrif á stefnu einstakra málefnasviða og málaflokka þegar fram í sækir án þess þó að þær muni kollvarpa þeirri stefnu sem hér er kynnt.

Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna

Í töflum með markmiðum og mælikvörðum fyrir hvern málaflokk er að finna tengingar við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun (HM). Markmiðin, sem gilda á tímabilinu 2016–2030, eru 17 talsins með 169 undirmarkmið og taka til innanlandsmála sem og alþjóðasamstarfs á gildistímanum.

Heimsmarkmiðin eru alþjóðlegt kall um aðgerðir í þágu jarðar, mannkyns og velsældar. Markmiðin eru margþætt og metnaðarfull og krefjast skipulagðrar vinnu af hálfu stjórnvalda en einnig þátttöku og samstarfs ólíkra hagsmunaaðila. Rík áhersla hefur verið lögð á tengingu heimsmarkmiðanna við markmiðssetningu í stefnumótun málefnasviða fyrir fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar á undanförum árum. Með því gefst tækifæri til að kortleggja hvaða aðgerðir og fjármagn liggja til grundvallar innleiðingu hvers markmiðs á tilteknu tímabili og þykir á alþjóða­vísu góð leið til að tryggja samþættingu fjármagns og aðgerða í þágu markmiðanna.

Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Yfirlit

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum