Innkaup
Innkaup fela í sér kaup á tækjum, búnaði og rekstrarvörum, en auk þess kaupa stofnanir og fyrirtæki ýmiss konar þjónustu sem tengist nýtingu upplýsingatækninnar. Í því sambandi getur verið um að ræða fjarskiptaþjónustu, rekstur tækja og/eða kerfa, hýsingu, gerð hugbúnaðar, ýmsa sérfræðiþjónustu og ráðgjöf.
Eftirfarandi upplýsingar eru miðaðar að opinberum aðilum, en geta að hluta einnig nýst fyrirtækjum á almennum markaði:
- Ýtarlegar upplýsingar sem varða tilhögun á opinberum innkaupum á vörum og þjónustu er að finna á vef fjármálaráðuneytisins . Þar er fjallað um innkaup, samninga og útboð auk þess sem vísað er í skýrslur og útgefið efni er þessi mál varða.
- Fjármálaráðuneytið hefur einnig umsjón með Stjórnendavef með hagnýtum upplýsingum miðuðum að stjórnendum í ríkisstofnunum, um stjórnun, fjármál, starfsmannamál, lög og reglugerðir.
- Innkaupastefnu ríkisins er ætlað að stuðla að virkri samkeppni á markaði og tryggja hagkvæmni í rekstri ríkisins. Í henni segir m.a. að eðlilegt sé að ríkisstofnanir skoði með reglulegum og skipulegum hætti hvort hagkvæmara sé að verkefni séu leyst með því að kaupa sérfræðiþjónustu á almennum markaði fremur en að vinna þau innan stofnunar. Sjónarmið til lengri tíma er að með markaðsvæðingu verkefna stuðli ríkið að uppbyggingu nýrrar atvinnustarfsemi á almennum markaði, þannig að sérþekking og reynsla nýtist atvinnulífinu í heild og styrki samkeppnisstöðu þess í alþjóðlegu samhengi.
- Innkaupastefna ríkisins (Stjórnendavefur)
- Opinber innkaup (Fjármálaráðuneyti)
- Opinber innkaup (Stjórnendavefur)
- Opinber innkaup á vél- og hugbúnaði ásamt þjónustu á sviði upplýsingatækni (Stjórnendavefur)
- Þjónustusamningar milli ríkisstofnunar og verksala um tiltekna þjónustu (Stjórnendavefur)
- Kaup á ráðgjöf (Stjórnendavefur)
- Stjórnendavefur
- Þjónustusamningar hjá ríkinu
- Reglugerð nr 343/2006 um samninga um rekstrarverkefni sem ráðuneyti og ríkisstofnanir gera til lengri tíma en eins árs.
- Útvistunarstefna ríkisins 2006
