Rafræn stjórnsýsla

Rafræn stjórnsýsla (e. eGovernment, s. eFörvaltning) felur í sér hagnýtingu upplýsingatækni í starfsemi hins opinbera.

Hugtakið er oft notað í víðri merkingu og einskorðast því ekki við rafræna meðferð og afgreiðslu mála í stjórnsýslunni. Rafræn stjórnsýsla hefur það yfirmarkmið að veita einstaklingum, stofnunum og fyrirtækjum góða, skilvirka og hagkvæma þjónustu með aðstoð upplýsingatækni.

Undir rafræna stjórnsýslu fellur meðal annars eftirfarandi:

  1. Rafræn meðferð og afgreiðsla mála í stjórnsýslunni
  2. Aðgengi að opinberum upplýsingum og þjónustu
  3. Aðkoma almennings að stefnumörkun og ákvarðanatöku opinberra aðila

Rafræn stjórnsýsla telst mikilvægt tæki til þess meðal annars að ná markmiðum um bætt aðgengi að stjórnsýslunni og þjónustu hennar, lækkaðan kostnað við að sækja og veita þjónustuna og aukin gæði þjónustunnar.

Staðlar og góðar fyrirmyndir í rafrænni stjórnsýslu

Vorið 2008 vann Capacent skýrslu fyrir forsætisráðuneytið og verkefnisstjórn um rafræna stjórnsýslu. Í henni er lýst framkvæmd og niðurstöðum úttektar ráðgjafa Capacent á stöðlum og góðum fyrirmyndum í rafrænni stjórnsýslu og dregin upp hugmynd að verkefnaramma. Tilgangur samantektarinnar var að fá yfirlit yfir stöðuna hér á landi og í nágrannalöndunum og gera tillögur um hvert bæri að stefna.

Staðlar og góðar fyrirmyndir í rafrænni stjórnsýslun (á pdf-formi, 492 KB)

 

Rafræn stjórnsýsla hjá Evrópusambandinu:

  • Áskrift að fréttabréfi um rafræna stjórnsýslu: Til að gerast áskrifandi að European eGovernment News Roundup þarftu að skrá þig inn og velur „eGovernment news (weekly email)".
 

 





 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefkerfivefkerfi - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.