Rafræn viðskipti

Hér annars staðar á vefnum er sérstakur flokkur um rafræn viðskipti þar sem lesa má nánar um þetta efni.

Rafræn viðskipti

Hvað eru rafræn viðskipti

Rafræn viðskipti eru víðtækt hugtak sem nær yfir fjölbreytt viðskiptaleg samskipti fyrirtækja og einstaklinga sem fara fram á rafrænan hátt. Þetta getur til dæmis átt við um viðskipti sem eiga sér stað í gegnum vefsíður fyrirtækja sem bjóða vörur og þjónustu til einstaklinga (sbr. Amazon og Ebay) og einnig viðskipti beint milli fyrirtækja sem fara fram með gagnaflutningum og sérstökum rafrænum skeytasendingum sem berast á ákveðinn hátt milli tölvukerfa þeirra. Markmið rafrænna viðskipta eru í flestum tilfellum þau að einfalda viðskipti, draga úr viðskiptakostnaði og bjóða aukið aðgengi að vöru og þjónustu.

Íslensk fyrirtæki hafa verið dugleg við að nýta sér kosti og möguleika rafrænna viðskipta, bæði með beintengingum og skeytasendingum sín í milli og einnig í gengum sérstök viðskiptatorg sbr. rafrænt markaðstorg ríkisins sem tengir saman fjölda birgja og kaupenda. Jafnframt hafa rafræn viðskipti milli fyrirtækja og einstaklinga aukist hröðum skrefum þar sem einstaklingar eru sífellt viljugri að versla, sbr. rafræn verslun, og eiga margvísleg viðskipti á netinu.

Stefnumótun í rafræn viðskiptum

Eins og áður sagði hafa rafræn viðskipti stuðlað að hagræðingu í margskonar viðskiptaferlum og samskiptum milli fyrirtækja auk þess að opna upp nýja vídd í verslun með vöru og þjónustu. Fyrirtæki þurfa í auknum mæli að kunna skil á og hafa getu til að geta nýtt sér kosti rafrænna viðskiptahátta í samskiptum sínum við önnur fyrirtæki og opinbera aðila. Til þess að svo megi verða þurfa þau jafnframt að greina og skipuleggja hvað þau þurfa, bæði m.t.t. þekkingar og tæknibúnaðar. Áður en slík vinna á sér stað er hinsvegar mikilvægt að fyrirtæki móti sér ákveðna stefnu og tiltekin markmið með rafrænum viðskiptum. Í mörgum tilfellum er hægt að uppfylla slíka stefnumörkun í áföngum þannig að verkefnið verði viðráðanlegra og auðveldara verði að mæla árangur eða væntingar fyrirtækja.

Í mörgum tilfellum er ekki lengur spurt um hvort fyrirtæki vilja innleiða rafræna viðskiptahætti heldur miklu frekar hvernig og í hvaða magni. Sem dæmi má nefna að fjölmargir af stærri vörubirgjum landsins gera nú þegar kröfu til viðskiptamanna sinna um samtengingu viðskiptakerfa með einhverskonar skeytasendingum þannig að allt innkaupa- og afgreiðsluferlið verði rafrænt og að allar færslu skili sér sjálfvirkt beint í viðskiptakerfi viðskiptaaðilanna.

Ýmis samtök hagsmunaaðila hafa markvisst unnið að uppbyggingu og stuðningi við rafræn viðskipti hjá íslenskum fyrirtækjum og stofnunum og má þar nefna ICEPRO, EAN á Íslandi og Staðlaráð Íslands. Á heimasíðum þessarra samtaka eru nánari upplýsingar um rafræn viðskipti og helstu staðla sem notaðir eru.

Staðlaráð

Fagstaðlaráð á sviði upplýsingatækni (undir Staðlaráði Íslands) hefur haft rafræn viðskipti sem eitt af helstu áherslumálum sínum. Staðlaráð hefur tekið þátt í fjölþjóðlegum þróunarverkefnum á þessu sviði. Sem dæmi um afurðir er námsefni um rafræn viðskipti ætlað starfsfólki/stjórnendum sem vilja skilja og þurfa að nýta upplýsingatæknina í almennum rekstri og viðskiptum. Einnig hefur verið þróað módel fyrir grunnþætti rafrænna viðskipti.







Útlit síðu: