Vefmælingar
Vefmælingar felast í að safna upplýsingum um heimsóknir á vefsíður, s.s. fjölda heimsókna á síðuna, fjölda endurkoma, fjölda lesinna síðna í hverri komu og margt fleira, jafnvel hvaðan (frá hvaða IP tölu) heimsóknin kemur. Umsjónarmenn vefja geta nýtt sér vefmælingar og t.d. tekið mið af þeim við endurskipulagningu veftrésins. Vefmælingar eru einnig nýttar af aðilum sem hafa tekjur af sölu auglýsinga á vefsíður.
- Samræmd vefmæling á annaðhundrað íslenskra vefja
- Um vefteljara, af wikipedia.org
- Um vefgreiningu, af wikipedia.org
