Fréttir

5/3/10 Útgáfa : Leiðbeiningarrit um frjálsan hugbúnað

Ríkisendurskoðun hefur gefið út rit sem ætlað er að fræða starfsmenn ríkistofnana um möguleika svokallaðs frjáls hugbúnaðar og leiðbeina um val á slíkum hugbúnaði. Í ritinu kemur fram að kostnaður íslenska ríkisins vegna kaupa á hugbúnaði hafi numið rúmlega 7,5 ma.kr. á tímabilinu 2006 til 2008. Hugsanlega megi spara fé með því að ríkisstofnanir samnýti frjálsan hugbúnað og hafi samstarf um þróun hans. Lesa meira
 

19/2/10 Fréttir : Tæknileg innleiðing rafrænna reikninga

Námskeið verður haldið 4. mars fyrir tæknimenn sem annast útfærslu og innleiðingu á rafrænum reikningum. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist skilning á uppbyggingu staðla fyrir rafræna reikninga og geti innleitt slíka reikninga samkvæmt tækniforskriftini TS 135. Lesa meira
 

18/1/10 Fréttir : Samræming rafrænna innkaupa í Evrópu

Opnað hefur verið fyrir aðgang að umgjörðum rafrænna skjala á vef Staðlastofnunarinnar. Umgjarðinar eru 26 og eru fyrir rafræn innkaup, þær eru samþykktar af vinnunefnd Staðlastofnunar Evrópu. Lesa meira
 

22/12/09 Vefkönnun 2009 : Hvað er spunnið í opinbera vefi 2009?

Niðurstöður þriðju könnunar á opinberum vefjum liggur fyrir. Könnunin var sem fyrr tvíþætt. Annars vegar voru vefirnir metnir af sérfræðingum samkvæmt gátlistum um innihald, nytsemi, aðgengi og þjónustu. Hins vegar svöruðu forsvarsmenn vefjanna spurningalista. Metnir voru 274 vefir ríkisstofnana, ráðuneyta og sveitarfélaga. Svarhlutfall var um 90%. Lesa meira
 

11/12/09 Fréttir : Niðurstöður könnunar kynntar 16. desember

Forsætisráðuneytið hefur látið gera úttekt á vefjum hátt í þrjú hundruð stofnana ríkis og sveitarfélaga. Fyrirtækið Sjá ehf framkvæmdi úttektina. Skýrslutæknifélagið boðar til hádegisverðarfundar á Grand Hótel miðvikudaginn 16. desember 2009, frá kl. 12:00 - 14:00 þar sem kynntar verða niðurstöður úttektarinnar. Fundurinn ber yfirskriftina „Hvað er spunnið í opinbera vefi 2009?“. Lesa meira
 

10/12/09 Fréttir : Staðlastofnun Evrópu (CEN) hefur gefið út tækniforskrift (CWA) fyrir rafræn innkaup

Vinnuhópurinn WS/BII hefur lokið 26 umgjörðum, sem snerta rafræn innkaup. Tækniforskriftin nær yfir innihaldslýsingar skeyta, dæmi, leiðbeiningar, verkfæri, svo og samræmdar tillögur um málskipan XML skjalanna. Lesa meira
 

20/10/09 Fréttir : Verkfærakistan verkefni vikunar á epractice.eu

Verkfærakista forsætisráðuneytisins hefur verið valin verkefni vikunar á vefnum epractice.eu. Vefurinn epractice.eu er samvinnuvettvangur fyrir alla þá sem vinna að verkefnum í rafrænni stjórnsýslu innan ESB og EFTA. Lesa meira
 

13/10/09 Fréttir : Lyklar að hraða og hagræðingu - rafrænir reikningar, pantanir og önnur viðskiptaskjöl

Skýrslutæknifélag Íslands og FUT, fagstaðlaráð Staðlaráðs í upplýsingatækni, efna til ráðstefnu um rafræn viðskiptaskjöl og tengda þjónustu á Grand Hótel þann 14. október n.k., frá kl. 13 - 17. Þar verður m.a. nýtt efni um rafræn viðskipti á UT-vefnum kynnt. Lesa meira
 

10/9/09 Útgáfa : Úttekt á OpenOffice.org skrifstofuvöndlinum

Ríkisskattstjóri hefur gert úttekt á frjálsum og opnum skrifstofuhugbúnaði fyrir forsætisráðuneytið. Verkefni RSK fólst annars vegar í að prófa helstu kerfishluta OpenOffice.org og hins vegar í að prófa samskipti innanhússkerfa RSK við hugbúnaðinn. Lesa meira
 

10/9/09 Útgáfa : Arðsemi rafrænnar stjórnsýslu metin með staðalkostnaðarlíkaninu

Pricewaterhouse Coopers hefur lokið við verkefni fyrir forsætisráðuneyti sem snérist um að leggja mat á arðsemi rafrænnar stjórnsýslu. Verkefni PwC fólst í að nota staðalkostnaðarlíkanið til að mæla arðsemi innleiðingar rafrænna stjórnsýslukerfa og einföldunaraðgerða fyrir notendur opinberrar þjónustu. Lesa meira
 

24/6/09 Fréttir : Úttekt á tæplega 300 opinberum vefjum

Um þessar mundir stendur forsætisráðuneytið fyrir úttekt á opinberum vefjum með tilliti til rafrænnar þjónustu. Úttektin nær til vefja ríkisstofnana, ráðuneyta, sveitarfélaga, sérvefja og opinberra hlutafélaga. Þetta er í þriðja sinn sem úttekt af þessu tagi er gerð en þær hafa áður farið fram árin 2005 og 2007. Lesa meira
 

12/6/09 Útgáfa : Rafræn eyðublöð og XML skema

Út er komin skýrsla á vegum forsætisráðuneytisins þar sem fjallað er um gerð XML skema fyrir rafræn samskipti m.a. með tilliti til rafrænna eyðublaða. Í hennni eru lögð fram frumgerð að tilraunaútgáfu á stöðlungi1 sem lýst er með XML skema. Lesa meira
 

8/6/09 Fréttir : Verkfærakista í boði forsætisráðuneytis

Forsætisráðuneytið hefur komið upp verkfærum til að auðvelda opinberum aðilum að bjóða upp á rafræna þjónustu fyrir viðskiptavini sína. Þessi verkfæri standa öllum opinberum stofnunum og sveitarfélögum til boða með litlum tilkostnaði af þeirra hálfu. Lesa meira
 

27/5/09 Fréttir : Efni frá ráðstefnu UT-dagsins komið á vefinn

Glærur og myndir frá ráðstefnunni Upplýsingatækni til endurreisnar sem haldin var 19. maí sl. eru nú aðgengilegar hér á vefnum. Lesa meira
 

13/5/09 Fréttir : Dagur upplýsingatækninnar - Upplýsingatækni til endurreisnar

Dagur upplýsingatækninnar, verður haldinn þriðjudaginn 19. maí. Af því tilefni er boðað til ráðstefnu þar sem fjallað verður um hvernig upplýsingatæknin geti nýst opinberum stofnunum, fyrirtækjum og almenningi í því endurreisnarstarfi sem fyrir höndum er í íslensku samfélagi. Lesa meira
 

11/5/09 Fréttir : Dagskrá ráðstefnu sem haldin er í tilefni UT- dagsins 2009

Í tilefni af UT-deginum 19. maí verður haldin ráðstefna á Hótel Hilton Nordica. Ráðstefnan hefst kl. 12 og stendur til kl. 17. Hægt er að skrá sig á vef sky.is, senda tölvupóst á sky@sky.is eða hafa samband í síma 553 2460. Lesa meira
 

14/4/09 Fréttir : Faghópur um rafræna opinbera þjónustu

Faghópur um rafræna opinbera þjónustu á vegum Skýrslutæknifélagins var stofnaður í janúar 2009. Markmið faghópsins er meðal annars að skapa vettvang fyrir faglega umræðu um rafræna opinbera þjónustu. Lesa meira
 

3/4/09 Fréttir : Nýtt fræðsluefni hér á vefnum

Tvær nýjar „handbækur“ um upplýsingatækni eru nú aðgengilegar hér á UT-vefnum. Vefhandbók um opinbera vefi er leiðarvísir um uppsetningu og viðhald vefja. Stafrænt frelsi er fræðsluefni um opinn og frjálsan hugbúnað, opna staðla og frjálst samfélag. Lesa meira
 

1/4/09 Fréttir : Ný könnun á opinberum vefjum

Forsætisráðuneytið stendur fyrir þriðju könnuninni á opinberum vefjum á vor- og sumarmánuðum 2009. Markmiðið með könnuninni er að fylgjast með framþróun vefja ríkis og sveitarfélaga og þeirrar þjónustu sem almenningi og atvinnulífi er veitt er á vefjunum. Lesa meira
 

24/3/09 Fréttir : Netríkið Ísland: Sjálfshjálp um vefi og opinn hugbúnað

Skýrslutæknifélagið og forsætisráðuneyti standa fyrir ráðstefnu á Grand Hótel 2. apríl kl. 12-14. Þar verður kynnt nýtt fræðsluefni á ut-vefnum, annars vegar handbók um opinbera vefi og hins vegar fræðsluefni um stafrænt frelsi. Lesa meira
 

9/9/08 Fréttir : Staðlar og góðar fyrirmyndir í rafrænni stjórnsýslu

Skýrsla Capacent er unnin fyrir forsætisráðuneytið og verkefnisstjórn um rafræna stjórnsýslu. Í henni er lýst framkvæmd og niðurstöðum úttektar ráðgjafa Capacent á stöðlum og góðum fyrirmyndum í rafrænni stjórnsýslu og dregin upp hugmynd að verkefnaramma. Lesa meira
 

24/7/08 Fréttir : Fyrirlestrar frá UT-ráðstefnu aðgengilegir hér á vefnum

Hér á vefnum er að finna efni frá UT-ráðstefnunni sem haldin var 7. maí 2008. Þar má fræðast nánar um stefnu ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið og þau verkefni sem henni tengjast. Þar má nefna rafræn skilríki, breytingar á þjónustu Tryggingastofnunar, upplýsingatækni í menntun og island.is. Lesa meira
 

19/5/08 Fréttir : UT-blaðið aðgengilegt á vefnum

UT-blaðinu 2008 var dreift með 24 stundum föstudaginn 9. maí. Blaðið inniheldur m.a. ýmsar áhugaverðar greinar um hina nýju stefnu um upplýsingasamfélagið og rafræna stjórnsýslu. Lesa meira
 
Geir H. Haarde forsætisráðherra kynnir UT-stefnu

7/5/08 Fréttir : Ný stefna ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið kynnt

Ríkisstjórnin gaf í dag út nýja stefnu um upplýsingasamfélagið og var hún kynnt í fyrsta sinn á UT-ráðstefnunni sem haldin var í tilefni dags upplýsingatækninnar. Lesa meira
 

25/4/08 Fréttir : Dagskrá ráðstefnu UT-dagsins 2008

Forsætisráðuneytið, í samvinnu við Skýrslutæknifélag Íslands, stendur fyrir ráðstefnu undir yfirskriftinni Netríkið Ísland í tilefni af degi upplýsingatækninnar. Ráðstefnan verður haldin á Hilton Nordica, miðvikudaginn 7. maí kl. 13:00-16:15. Þar verður kynnt ný stefna ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið og nokkur lykilverkefni sem unnið verður að á framkvæmdatíma stefnunnar. Skráning og frekari upplýsingar á (www.sky.is

).

Lesa meira
 

4/4/08 Fréttir : Dagur upplýsingatækninnar 7. maí 2008

Dagur upplýsingatækninnar verður haldinn 7. maí 2008. Í tilefni dagsins verður haldin ráðstefna þar sem kynnt verður ný stefna ríkisstjórnar Íslands um upplýsingasamfélagið og fjallað um verkefni sem hrinda á í framkvæmd á næstu árum. Lesa meira
 

11/3/08 Fréttir : Stefna um frjálsan og opinn hugbúnað

Verkefnisstjórn um rafræna stjórnsýslu í forsætisráðuneyti vann að mótun stefnu um frjálsan og opinn hugbúnað. Stuðst var meðal annars við skýrslu um opinn hugbúnað sem gerð var fyrir forsætisráðuneytið 2005, stefnur annarra þjóða og margvíslegt efni frá Evrópusambandinu. Haft var samráð við hagsmunaaðila og var stefnan síðan samþykkt í verkefnisstjórn um upplýsingasamfélagið. Ríkisstjórnin samþykkti stefnuna 11. mars 2008. Lesa meira
 

28/2/08 Fréttir : Netspjall um mótun nýrrar stefnu um upplýsingasamfélagið

Opið samráð um áherslur í nýrri stefnu um upplýsingasamfélagið er hafið. Almenningur og hagsmunaaðilar geta komið sjónarmiðum sínum á framfæri með þátttöku í netspjalli til 19. mars nk. Lesa meira
 

14/12/07 Fréttir : Hvað er spunnið í opinbera vefi 2007 - Niðurstöður

Rafræn þjónusta opinberra aðila hefur aukist frá árinu 2005. Nú bjóða 19% stofnana upp á fullkomlega rafræna afgreiðslu erinda en fyrir tveimur árum buðu 3% upp á slíka þjónustu. Lesa meira
 

4/12/07 Fréttir : Hvað er spunnið í opinbera vefi 2007?

Forsætisráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga hafa látið gera úttekt á á vefjum 280 stofnana ríkis og sveitarfélaga. Fyrirtækið Sjá ehf framkvæmdi úttektina. Skýrslutæknifélagið boðar til hádegisverðarfundar á Grand Hótel þann 13. desember 2007, frá kl. 12:00 - 14:00 þar sem kynntar verða niðurstöður úttektarinnar. Lesa meira
 

5/11/07 Fréttir : Ráðherraráðstefna um rafræna stjórnsýslu í Lissabon - Ráðherrayfirlýsing

Ráðstefnan fór fram dagana 19. - 21. september 2007 og bar yfirskriftina Hvernig nýta má kosti rafrænnar stjórnsýslu (e. Reaping the Benefits of eGovernment). Markmiðin með ráðstefnunni voru að fara yfir það helsta sem hefur áunnist í rafrænni stjórnsýslu, greiða götu áframhaldandi þróunar og marka stefnu fyrir næstu ár. Lesa meira
 

10/9/07 Fréttir : Endurnot opinberra upplýsinga

Forsætisráðuneytið, LÍSU samtökin og ePSIplus verkefni Evrópusambandsins héldu hádegisverðarfund miðvikudaginn 5. september 2007 í Kornhlöðunni, Lækjarbrekku, Bankastræti 2. Lesa meira
 

24/8/07 Fréttir : Úttekt á framkvæmd stefnunnar um upplýsingasamfélagið árin 2004-2007

Hafin er úttekt sem ætlað er að varpa ljósi á hvernig til hefur tekist með framkvæmd stefnu upplýsingasamfélagsins Auðlindir í allra þágu, á árunum 2004-2007. Lesa meira
 

24/8/07 Fréttir : Úttekt á opinberum vefjum

Forsætisráðuneyti og Samband íslenskra sveitarfélaga standa fyrir úttekt á opinberum vefjum á Íslandi. Úttektin hefur farið fram nú í sumar og er niðurstaðna að vænta á haustmánuðum 2007 og verða þær rækilega kynntar. Lesa meira
 

11/4/07 Fréttir : Verðlaun fyrir verkefni á sviði rafrænnar stjórnsýslu

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins auglýsir nú í þriðja sinn eftir upplýsingum um góð verkefni á sviði rafrænnar stjórnsýslu innan ESB og EES. Lesa meira
 
Gervihnattadiskur

7/3/07 Fréttir : Glærur og upptaka frá ráðstefnu

Upptaka frá ráðstefnunni Nýtum tímann - Notum tæknina sem haldin var í Salnum í Kópavogi er nú opin öllum. Einnig eru glærur fyrirlesara aðgengilegar. Lesa meira
 
UT-blaðið 2007 - forsíða

5/3/07 UT-blaðið 2007 : 03.03.07 UT-blaðið 2007

UT-blaðinu 2007 var dreift með Morgunblaðinu laugardaginn 3. mars og er birt hér í heild sinni á rafrænu sniði. Jafnframt verða einstakar greinar blaðsins birtar hér á UT-vefnum. Lesa meira
 
UT-merkið

26/2/07 Fréttir : UT DAGURINN

Forsætis- og fjármálaráðuneyti standa að undirbúningi UT-dagsins sem haldinn verður 8. mars nk. Lögð verður áhersla á mikilvægi upplýsingatækninnar sem verkfæris til að minnka skriffinnsku, spara tíma og auka hagræði. Lesa meira
 

14/2/07 Fréttir : Nýtum tímann - Notum tæknina Dagskrá UT-ráðstefnunnar 2007

Í tilefni UT-dagsins standa forsætis- og fjármálaráðuneyti fyrir ráðstefnu undir yfirskriftinni Nýtum tímann ? Notum tæknina í Salnum, Kópavogi, 8. mars nk. kl. 13:00-16:30. Lesa meira
 

9/2/07 Fréttir : Tillögur að stefnu um opinn hugbúnað

Verkefnisstjórn um rafræna stjórnsýslu sem starfar í forsætisráðuneyti hefur unnið tillögur að stefnu stjórnvalda um opinn hugbúnað. Lesa meira
 

2/2/07 Fréttir : Breiður hópur sýnenda á Tækni og viti 2007

Nú styttist óðum í stórsýninguna Tækni og vit 2007 og stefnir allt í að hún verði einn stærsti viðburður í íslenskum tækni- og þekkingariðnaði frá upphafi. Lesa meira
 

2/2/07 Fréttir : UT-ráðstefnan 2007

Í tilefni UT-dagsins standa forsætis- og fjármálaráðuneytið að ráðstefnu í Salnum, Kópavogi, 8. mars kl. 13.00 til 16.30. Á ráðstefnunni verður m.a. fjallað um þjónustuveituna Ísland.is, nýjungar í þjónustu sveitarfélaga, rafræn skilríki og rafræn innkaup en þessir þættir munu skipta sífellt meira máli í þjónustu opinberra aðila á komandi árum. Lesa meira
 

2/2/07 Fréttir : UT-blaðið 2007

UT-dagurinn verður haldinn á vegum forsætis- og fjármálaráðuneyta þann 8. mars næstkomandi. Með honum vilja ráðuneytin vekja athygli á þeim tækifærum sem Íslendingar hafa á sviði upplýsingatækni, rafrænnar þjónustu og fjarskipta. Lesa meira
 
Er veraldarvefurinn völundarhús

31/1/07 Fréttir : Er Veraldarvefurinn völundarhús?

SAFT, Síminn, Microsoft, SMÁÍS og Samtónn boða til ráðstefnu um skynsama notkun og örugg samskipti á Netinu á Alþjóðlega netöryggisdaginn þann 6. febrúar nk. Lesa meira
 

31/1/07 Fréttir : Handbók fyrir rafræn innkaup í XML er komin út

Komnar eru út samnorrænar leiðbeiningar um notkun XML staðalsins UBL 2.0 frá OASIS. Í þeim er tekið tillit til þarfa Íslendinga. Þar með er leiðin greið fyrir samræmdar XML sendingar rafrænna reikninga, pantana og vörulista. Lesa meira
 

30/11/06 Fréttir : Könnun á umfangi upplýsingatækni innan stofnana ríkisins

Nýlega lauk ráðgjafafyrirtækið Intellecta gerð könnunar á umfangi upplýsingatækni innan stofnana ríkisins. Könnunin var unnin fyrir Samtök iðnaðarins og iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið. Lesa meira
 

10/11/06 Fréttir : Ráðstefna um aðgengismál á Netinu

Ráðstefnan Aðgengi á Netinu: hvar erum við stödd? verður haldin á vegum SJÁ í samvinnu við forsætisráðuneytið og Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) þann 14. nóvember næstkomandi. Lesa meira
 

11/10/06 Fréttir : Sjálfsafgreiðsla stofnana eykur hagræði fyrir fyrirtæki og almenning

Rafræn þjónusta, rafræn skilríki og rafræn innkaup verða meginumræðuefni UT-dagsins sem haldinn verður í annað sinn fimmtudaginn 8. mars 2007. Lesa meira
 

11/10/06 Fréttir : Tækni og vit 2007 haldin í mars

Stórsýningin Tækni og vit 2007, fagsýning tækni- og þekkingariðnaðarins, verður haldin í Fífunni í Kópavogi dagana 8.?11. mars næstkomandi. Lesa meira
 

12/9/06 Fréttir : Aðgengi allra að upplýsingum á vef - Leiðbeiningar um gerð aðgengilegra PDF skjala

Teknar hafa verið saman leiðbeiningar um hvernig sníða skal fyrirsagnir, myndir, gröf og fleira í Microsoft Word skjali og útbúa það á PDF sniði þannig að upplýsingarnar verði aðgengilegar blindum og sjónskertum. Lesa meira
 

29/8/06 Fréttir : Ábendingar um umræðutorg, netspjall og rafrænar kannanir

Verkefnisstjórn um upplýsingasamfélagið hefur tekið saman ábendingar um umræðutorg, netspjall og rafrænar kannanir en tilgangur þeirra er að auðvelda stofnunum, ráðuneytum og sveitarfélögum að auka samráð og samskipti við almenning. Lesa meira
 

28/8/06 Fréttir : Umræðutorg, netspjall og rafrænar kannanir, hádegisfundur á Grand Hótel Reykjavík 29. ágúst 2006

Nú er lokið tilraunaverkefnum á vegum forsætis- og félagsmálaráðuneytis sem fólust í að kanna hvernig og á hvaða sviðum auka megi samráð og samskipti milli almennings og opinberra aðila. Verkefnin voru unnin af  félagsmálaráðuneytinu og sveitarfélaginu Garðabæ. Lesa meira
 

11/8/06 Fréttir : UT-dagurinn árið 2007

UT-dagurinn árið 2007 verður haldinn fimmtudaginn 8. mars. Eins og kunnugt er var fyrsti UT-dagurinn haldinn 24. janúar sl. Mikill áhugi reyndist vera fyrir þessum viðburði. Lesa meira
 

16/5/06 Fréttir : Aðgengisstefna fyrir stjórnarráðsvefinn

Vefstjórn stjórnarráðsvefs hefur markað aðgengisstefnu fyrir vefi ráðuneytanna. Lesa meira
 

5/4/06 Fréttir : IceWeb 2006

Dagana 27. og 28. apríl næstkomandi munu Samtök vefiðnaðarins, SVEF, halda ráðstefnuna IceWeb 2006, stærstu ráðstefnu sem haldin hefur verið á Íslandi um vefmál. Nokkrir þekktustu fyrirlesarar heims koma þá til landsins og flytja fyrirlestra um nútíð og framtíð í vefþróun, -hönnun og -tækni. Lesa meira
 
UT 2006 - lógó

17/2/06 Fréttir : UT2006 - ráðstefna um þróun í skólastarfi

Menntamálaráðuneytið stendur fyrir UT2006 - ráðstefnu um þróun í skólastarfi, föstudaginn 3. mars 2006. Ráðstefnan er haldin í Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Lesa meira
 

24/1/06 Fréttir : Ávarp Halldórs Ásgrímssonar, forsætisráðherra, á UT-deginum 24. janúar 2006

Ávarp Halldórs Ásgrímssonar, forsætisráðherra, á ráðstefnunni Tæknin og tækfærin á UT-deginum 24. janúar 2006. Lesa meira
 

19/1/06 Fréttir : Dagur upplýsingatækninnar 24. janúar 2006

Íslendingar eru í fararbroddi Evrópuþjóða í tölvunotkun, tölvueign og tengingu við Netið en í meðallagi þegar kemur að netverslun og opinberri þjónustu. Lesa meira
 

16/1/06 Fréttir : UT-dagurinn er 24. janúar

Upplýsingatæknidagurinn, UT-dagurinn, verður haldinn í fyrsta sinn þann 24. janúar nk. Hann er haldinn til að vekja athygli á þeim tækifærum sem Íslendingar hafa á sviði upplýsingatækni, upplýsingatækniiðnaðar og fjarskipta.

Lesa meira
 
Icepro - lógó

15/1/06 Fréttir : XML dagur rafrænna reikninga 23. janúar 2006

Það er hlutverk Icepro að fræða atvinnulífið hér um það sem er nýjast og merkast í rafrænum samskiptum í kringum okkur, til þess að gera fyrirtækjum og stofnunum kleift að taka þátt í þeirri þróun sem þar fer fram.

Lesa meira
 
Nordic Information Society Statistics 2005

15/12/05 Fréttir : Nýjar útgáfur um upplýsingasamfélagið

Skýrsla Norræna ráðherraráðsins sem unninn var í samvinnu við hagstofur Norðurlandanna. Í henni eru birtar niðurstöður um ýmis málefni sem snerta upplýsingasamfélagið á Norðurlöndum.

Lesa meira
 

5/12/05 Fréttir : UT-dagurinn 24. janúar 2006

Stjórnvöld, í samvinnu við upplýsingatækniiðnaðinn, standa fyrir sérstökum upplýsingatæknidegi þann 24. janúar nk undir nafninu UT-dagurinn.

Lesa meira
 

28/11/05 Fréttir : Evrópa stefnir á að verða leiðandi í notkun upplýsingatækni í heiminum

Ráðherraráðstefna um rafræna stjórnsýslu fer fram dagana 24. og 25. nóvember í Manchester á Englandi.

Lesa meira

 

18/11/05 Fréttir : Íslensku fyrirtæki veitt verðlaun á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna í Túnis

Íslensku fyrirtæki, 3-plus, verða veitt verðlaun í nýmiðlunarsamkeppni Sameinuðu þjóðanna sem fer fram í tengslum við leiðtogafund um upplýsingasamfélagið sem nú stendur yfir í Túnis. Lesa meira
 

10/11/05 Fréttir : Netspjall ? aukin þjónusta hjá Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna

Á vegum félagsmálaráðuneytisins er starfrækt Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna sem er samstarfsverkefni nokkurra aðila. Netspjall er viðbót við þjónustu Ráðgjafarstofunnar. Lesa meira
 

10/11/05 Fréttir : Samskiptatorg félagsmálaráðuneytisins

Félagsmálaráðuneytið hefur opnað sérstakt Samskiptatorg. Verkefnið á rætur sínar að rekja til stefnu ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið. Lesa meira
 
Mynd: Frá vöggu til grafar - lífshringur

26/10/05 Fréttir : Norrænar þjónustuveitur

Dagana 13. ? 14. október sl. var haldinn hér á landi fundur norrænu þjóðanna um rafrænar þjónustuveitur.
Lesa meira
 
Mynd: Rafræn þjónustuveita - forsíða skýrslu

4/10/05 Útgáfa : Rafræn þjónustuveita - Ísland.is

Í maí 2005 kom út skýrsla um stefnumótun fyrir rafræna þjónustuveitu ríkis og sveitarfélaga. Höfundur er Halla Björg Baldursdóttir, forsætisráðuneyti, og er skýrslan unnin sem lokaverkefni í MBA-námi hennar við Háskólann í Reykjavík. Tilefni skýrslunnar er verkefni í stefnu ríkisstjórnarinnar, Auðlindir í allra þágu, um rafræna þjónustuveitu. Lesa meira
 

28/9/05 Fréttir : Ábyrgð fjarskiptafyrirtækja

Samgönguráðherra hefur, í ljósi umræðu um fjarskiptaöryggi og ásakana í garð fjarskiptafyrirtækja, sent Póst- og fjarskiptastofnun bréf þess efnis að stofnunin bregðist sérstaklega við til þess að tryggja öryggi á þessu sviði.

Lesa meira

 

13/9/05 Fréttir : Stjórnarráðsvefurinn og aðgengismál

Í stefnu ríkisstjórnarinnar Auðlindir í allra þágu segir meðal annars að tryggja verði að rafræn þjónusta opinberra aðila taki mið af þörfum ólíkra hópa, s.s. blindra, sjónskertra og fatlaðra.

Lesa meira
 

24/6/05 Fréttir : Notkun heimila og einstaklinga á tæknibúnaði og Interneti árið 2005

Út er komin ný skýrsla frá Hagstofu Íslands um notkun heimila og einstaklinga á tæknibúnaði og Interneti árið 2005. Lesa meira
 

14/6/05 Fréttir : Lög um rafræna stjórnsýslu ásamt greinargerð

Vakin er athygli á því að lög um rafræna stjórnsýslu ásamt greinargerð er hægt að nálgast hér á vefnum. Lesa meira
 

31/5/05 Útgáfa : Opinn hugbúnaður

Í apríl 2005 kom út skýrsla um opinn hugbúnað. Hún fjallar um það hvort og hvernig opinn hugbúnaður geti verið valkostur við séreignarhugbúnað. Fyrirtækið ParX ? viðskiptaráðgjöf IBM vann skýrsluna fyrir Verkefnisstjórn um rafræna stjórnsýslu. Markmiðið með henni er að undirbúa stefnumótun stjórnvalda um notkun opins hugbúnaðar.

Lesa meira
 

15/5/05 Fréttir : Úttekt á vefjum ríkis og sveitarfélaga

Forsætisráðuneytið, í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga, vinnur nú að úttekt á vefjum ríkisstofnana og sveitarfélaga. Verkefnið er liður í stefnu ríkisstjórnarinnar, Auðlindir í allra þágu sem kom út í mars 2004. Þar eru sett fram markmið um að tekið verði saman yfirlit yfir þá rafrænu þjónustu sem er í boði hjá opinberum aðilum.

Lesa meira
 

12/4/05 Fréttir : Fjarskiptaáætlun hefur verið gefin út

Samgönguráðherra hefur kynnt fjarskiptaáætlun fyrir árin 2005-2010. Lesa meira
 

29/3/05 Fréttir : Tilraunir með vettvang fyrir samráð og samskipti milli almennings og opinberra aðila

Forsætisráðuneyti hefur gert samning við félagsmálaráðuneytið og Garðabæ um að þessir aðilar taki að sér að gera tilraunir með umræðutorg í anda stefnu ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið.

Lesa meira
 

16/3/05 Fréttir : Ísland er í öðru sæti yfir þjóðir heims sem nýta vel nýja upplýsinga- og fjarskiptatækni

Af þeim 104 þjóðum sem Alþjóðaefnahagsráðið nær til er Ísland í 2. sæti yfir þjóðir sem nýta vel nýja upplýsinga- og fjarskiptatækni.

Lesa meira

 
Rafrænt umræðutorg, forsíða skýrslu

5/1/05 Útgáfa : Rafrænt umræðutorg

Í október 2004 kom út skýrsla um rafrænt umræðutorg. Höfundur er Halla Björg Baldursdóttir, forsætisráðuneyti og er skýrslan unnin sem verkefni í MBA-námi hennar við Háskólann í Reykjavík. Tilefni skýrslunnar er verkefni í stefnu ríkisstjórnarinnar, Auðlindir í allra þágu, sem fjallar um það hvernig auka megi samráð og samskipti milli almennings og opinberra aðila, til dæmis með uppsetningu umræðutorga þar sem fram fari skoðanaskipti um afmörkuð málefni. Lesa meira
 

17/12/04 Fréttir : Samspil tungu og tækni: Afrakstur tungutækniverkefnis menntamálaráðuneytisins

Menntamálaráðuneyti hefur á árunum 1998-2004 unnið að tungutækniverkefni sem skilað hefur umtalsverðum árangri.

Lesa meira
 

14/10/04 Verkefnisstjórn um rafræna stjórnsýslu : Verkefnisstjórn um rafræna stjórnsýslu

Forsætisráðuneyti hefur skipað verkefnisstjórn um rafræna stjórnsýslu. Skipunin er í samræmi við stefnu ríkisstjórnar Íslands frá febrúar 2004 sem ber yfirskriftina: Auðlindir í allra þágu - Stefna ríkisstjórnarinnar um upplýsingsamfélagið 2004-2007. Lesa meira
 

7/10/04 Fréttir : Vefur um upplýsingatækni og lýðræði

Vefur hefur verið opnaður með efni ráðstefnunnar Framtíð lýðræðisins í upplýsingasamfélagi, sem haldin var í Reykjavík 26.-27. ágúst sl. Lesa meira
 
Demokratiets fremtid i informationssamfundet

28/8/04 Fréttir : Ráðstefna um lýðræðið á öld upplýsingatækni

Dagana 26.-27. ágúst 2004 var haldin ráðstefna um lýðræðið á öld upplýsingatækni. Ráðstefnan var haldin á Hótel Nordica og sátu hana á annað hundrað manns frá öllum Norðurlöndunum. Þar var meðal annars fjallað um áhrif upplýsingatækni á lýðræðið og hvernig nýta má tæknina til að efla það. Lesa meira
 

26/8/04 Fréttir : Fundur norænna upplýsingatækniráðherra haldinn á Íslandi

Norræna ráðherranefndin um upplýsingatækni hélt árlegan fund sinn að hótel Nordica í dag. Lesa meira
 

11/5/04 Verkefnisstjórn um upplýsinga-samfélagið : Verkefnisstjórn um upplýsingasamfélagið

Skipuð hefur verið ný Verkefnisstjórn um upplýsingasamfélagið sem hefur það hlutverk að fylgja eftir nýrri stefnu ríkisstjórnarinnar í málefnum upplýsingasamfélagsins.

Lesa meira

 

18/3/04 Fréttir : Ráðstefna um þekkingu á sviði rafrænnar stjórnsýslu

Þann 16. mars 2004 efndu ParX, Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála og forsætisráðuneytið til ráðstefnu um þekkingu og reynslu á sviði rafrænnar stjórnsýslu. Markmið ráðstefnunnar var að skapa vettvang fyrir umræður um rafræna stjórnsýslu og þjónustu. Lesa meira
 

17/3/04 Fréttir : Könnun um væntingar forstöðumanna ríkisstofnana og sveitarfélaga til rafrænnar stjórnsýslu

Í nóvember 2003 gerði ParX ? viðskiptaráðgjöf IBM í samráði við forsætisráðuneytið netkönnun um væntingar forstöðumanna ríkisstofnana og sveitarfélaga til rafrænnar stjórnsýslu. Lesa meira
 
Forsíða bæklings

11/3/04 Útgáfa : Stefna ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið 2004 -2007

Einstaklingurinn, tækifæri hans og velferð í samfélaginu eru leiðarljós nýrrar stefnu um upplýsingasamfélagið. Í henni segir m.a. að upplýsingatækni veiti einstaklingum, atvinnulífi og opinberri þjónustu tækifæri til að nýta sér þær auðlindir sem felast í upplýsingum, þekkingu og nýsköpun. Lesa meira
 

19/2/04 Fréttir : Fjarskiptaáætlun fyrir árin 2005?2010

Samgönguráðherra hefur ákveðið að hefja undirbúning að gerð fjarskiptaáætlunar fyrir árin 2005?2010 en með henni er stefnt að því að móta heildarstefnu í fjarskiptamálum á Íslandi. Lesa meira
 
Report - Cover

2/2/04 Fréttir : Íslenska upplýsingasamfélagið 2003

Samantekt á ensku um stöðu íslenska upplýsingasamfélagsins á árinu 2003. Lesa meira
 

20/11/03 Fréttir : Mótun nýrrar stefnu

Nú við upphaf nýs kjörtímabils hefur ríkisstjórnin ákveðið að endurskoða stefnuna um upplýsingasamfélagið sem er frá árinu 1996 og móta framtíðarsýn í málaflokknum sem m.a. tekur mið af nýjum stjórnarsáttmála og alþjóðlegum straumum. Lesa meira
 

2/9/03 Fréttir : Stór áfangi - Sæsímastrengurinn FARICE-1

Þann 2. september náðist sá ánægjulegi áfangi að nýr sæsímastrengur, FARICE-1, var tekinn á land við Seyðisfjörð. Með tilkomu hans mun gagnaflutningsgeta fjarskiptakerfa milli Íslands og Evrópu margfaldast.

Lesa meira
 

24/8/03 Fréttir : NORDUnet Networking Conference 2003

The 21st NORDUnet Networking Conference in Reykjavik - Opening address by Guðbjörg Sigurðardóttir. Lesa meira
 

24/7/03 Fréttir : Ný lög um fjarskipti

Á morgun, föstudaginn 25. júlí 2003, ganga í gildi ný lög um fjarskipti sem samþykkt voru á Alþingi sl. vor. Lesa meira
 

8/7/03 Fréttir : Fundur evrópskra ráðherra um rafræna stjórnsýslu - eGovernment 2003.

Dagana 7.-8. júlí gekkst Evrópusambandið fyrir ráðherrafundi og ráðstefnu um rafræna stjórnsýslu (eGovernment) í Como á Ítalíu. Lesa meira
 
Á meðfylgjandi mynd eru Geir H. Haarde, fjármálaráðherra, Lísa Björg Ingvarsdóttir frá Hugviti og Hlöðver Bergmundsson frá LÍN á íslenska kynningarbásnum.

8/7/03 Fréttir : eGovernment 2003

Dagana 7.-8. júlí gekkst Evrópusambandið fyrir ráðherrafundi og ráðstefnu um rafræna stjórnsýslu (eGovernment) í Como á Ítalíu. Lesa meira
 

8/4/03 Fréttir : Úthlutun styrkja vegna upplýsingatækni í almenningsbókasöfnum

Menntamálaráðherra hefur úthlutað styrkjum af fé því sem veitt er vegna upplýsingatækni í almenningsbókasöfnum í samræmi við bráðabirgðaákvæði í lögum Lesa meira
 

14/3/03 Fréttir : Þróunarverkefninu um íslenska upplýsingasamfélagið lauk 28. febrúar 2003 nýtt skipulag tekur við

Þróunarverkefninu um íslenska upplýsingasamfélagið lauk 28. febrúar 2003 - nýtt skipulag tekur við. Lesa meira
 

18/2/03 Fréttir : Styrkir til samstarfsverkefna í upplýsingatækni

Menntamálaráðuneytið hefur veitt styrki til sautján samstarfsverkefna í upplýsingatækni. Lesa meira
 

14/2/03 Fréttir : Nýtt háhraðanet

Nýtt háhraðanet, sem tengir saman framhaldsskóla og símenntunarmiðstöðvar um land allt, verður formlega tekið í notkun 14. febrúar 2003. Lesa meira
 

29/1/03 Fréttir : Rafræn skilríki fyrir ríkisstofnanir og viðskiptavini þeirra.

Fjármálaráðuneytið hefur fyrir hönd ríkisstofnana samið við Skýrr hf um kaup á rafrænum skilríkjum og viðeigandi tæknibúnaði fyrir notkun þeirra. Lesa meira
 

 

   UT.IS býður upp á RSS straum 
    til að sækja fréttir af vefnum

 





 
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.