Skýrsla Norræna ráðherraráðsins sem unninn var í samvinnu við hagstofur Norðurlandanna. Í henni eru birtar niðurstöður um ýmis málefni sem snerta upplýsingasamfélagið á Norðurlöndum.
Lesa meiraStjórnvöld, í samvinnu við upplýsingatækniiðnaðinn, standa fyrir sérstökum upplýsingatæknidegi þann 24. janúar nk undir nafninu UT-dagurinn.
Lesa meiraRáðherraráðstefna um rafræna stjórnsýslu fer fram dagana 24. og 25. nóvember í Manchester á Englandi.
Samgönguráðherra hefur, í ljósi umræðu um fjarskiptaöryggi og ásakana í garð fjarskiptafyrirtækja, sent Póst- og fjarskiptastofnun bréf þess efnis að stofnunin bregðist sérstaklega við til þess að tryggja öryggi á þessu sviði.
Í stefnu ríkisstjórnarinnar Auðlindir í allra þágu segir meðal annars að tryggja verði að rafræn þjónusta opinberra aðila taki mið af þörfum ólíkra hópa, s.s. blindra, sjónskertra og fatlaðra.
Lesa meiraÍ apríl 2005 kom út skýrsla um opinn hugbúnað. Hún fjallar um það hvort og hvernig opinn hugbúnaður geti verið valkostur við séreignarhugbúnað. Fyrirtækið ParX – viðskiptaráðgjöf IBM vann skýrsluna fyrir Verkefnisstjórn um rafræna stjórnsýslu. Markmiðið með henni er að undirbúa stefnumótun stjórnvalda um notkun opins hugbúnaðar.
Lesa meiraForsætisráðuneytið, í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga, vinnur nú að úttekt á vefjum ríkisstofnana og sveitarfélaga. Verkefnið er liður í stefnu ríkisstjórnarinnar, Auðlindir í allra þágu sem kom út í mars 2004. Þar eru sett fram markmið um að tekið verði saman yfirlit yfir þá rafrænu þjónustu sem er í boði hjá opinberum aðilum.
Lesa meiraForsætisráðuneyti hefur gert samning við félagsmálaráðuneytið og Garðabæ um að þessir aðilar taki að sér að gera tilraunir með umræðutorg í anda stefnu ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið.
Lesa meiraAf þeim 104 þjóðum sem Alþjóðaefnahagsráðið nær til er Ísland í 2. sæti yfir þjóðir sem nýta vel nýja upplýsinga- og fjarskiptatækni.