Fréttir

Staðlar og góðar fyrirmyndir í rafrænni stjórnsýslu - 9/9/08 Fréttir

Skýrsla Capacent er unnin fyrir forsætisráðuneytið og verkefnisstjórn um rafræna stjórnsýslu. Í henni er lýst framkvæmd og niðurstöðum úttektar ráðgjafa Capacent á stöðlum og góðum fyrirmyndum í rafrænni stjórnsýslu og dregin upp hugmynd að verkefnaramma. Lesa meira

Fyrirlestrar frá UT-ráðstefnu aðgengilegir hér á vefnum - 24/7/08 Fréttir

Hér á vefnum er að finna efni frá UT-ráðstefnunni sem haldin var 7. maí 2008. Þar má fræðast nánar um stefnu ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið og þau verkefni sem henni tengjast. Þar má nefna rafræn skilríki, breytingar á þjónustu Tryggingastofnunar, upplýsingatækni í menntun og island.is. Lesa meira

UT-blaðið aðgengilegt á vefnum - 19/5/08 Fréttir

UT-blaðinu 2008 var dreift með 24 stundum föstudaginn 9. maí. Blaðið inniheldur m.a. ýmsar áhugaverðar greinar um hina nýju stefnu um upplýsingasamfélagið og rafræna stjórnsýslu. Lesa meira
Geir H. Haarde forsætisráðherra kynnir UT-stefnu

Stefna ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið - 7/5/08 Fréttir

Ríkisstjórnin gaf í dag út nýja stefnu um upplýsingasamfélagið og var hún kynnt í fyrsta sinn á UT-ráðstefnunni sem haldin var í tilefni dags upplýsingatækninnar.

Lesa meira

Dagskrá ráðstefnu UT-dagsins 2008 - 25/4/08 Fréttir

Forsætisráðuneytið, í samvinnu við Skýrslutæknifélag Íslands, stendur fyrir ráðstefnu undir yfirskriftinni Netríkið Ísland í tilefni af degi upplýsingatækninnar. Ráðstefnan verður haldin á Hilton Nordica, miðvikudaginn 7. maí kl. 13:00-16:15. Þar verður kynnt ný stefna ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið og nokkur lykilverkefni sem unnið verður að á framkvæmdatíma stefnunnar. Skráning og frekari upplýsingar á (www.sky.is

).

Lesa meira

Dagur upplýsingatækninnar 7. maí 2008 - 4/4/08 Fréttir

Dagur upplýsingatækninnar verður haldinn 7. maí 2008. Í tilefni dagsins verður haldin ráðstefna þar sem kynnt verður ný stefna ríkisstjórnar Íslands um upplýsingasamfélagið og fjallað um verkefni sem hrinda á í framkvæmd á næstu árum. Lesa meira

Stefna um frjálsan og opinn hugbúnað - 11/3/08 Fréttir

Verkefnisstjórn um rafræna stjórnsýslu í forsætisráðuneyti vann að mótun stefnu um frjálsan og opinn hugbúnað. Stuðst var meðal annars við skýrslu um opinn hugbúnað sem gerð var fyrir forsætisráðuneytið 2005, stefnur annarra þjóða og margvíslegt efni frá Evrópusambandinu. Haft var samráð við hagsmunaaðila og var stefnan síðan samþykkt í verkefnisstjórn um upplýsingasamfélagið. Ríkisstjórnin samþykkti stefnuna 11. mars 2008.

Lesa meira

Netspjall um mótun nýrrar stefnu um upplýsingasamfélagið - 28/2/08 Fréttir

Opið samráð um áherslur í nýrri stefnu um upplýsingasamfélagið er hafið. Almenningur og hagsmunaaðilar geta komið sjónarmiðum sínum á framfæri með þátttöku í netspjalli til 19. mars nk. Lesa meira






Útlit síðu: