Hoppa yfir valmynd
11. október 2012 Innviðaráðuneytið

Ríkisstjórnin hefur samþykkt nýja stefnu til að tryggja aðgengi blindra, sjónskertra o. fl. að opinberum vefjum

Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra um nýja aðgengisstefnu fyrir opinbera vefi til að tryggja aðgengi m.a. fyrir blinda, sjónskerta og aðra sem þurfa að nota hjálpartæki við lestur efnis og notkun vefja almennt. Innleiðingu viðmiðanna á að vera lokið 1. janúar 2015.*

Aðgengisviðmiðin í nýju stefnunni fylgja staðli alþjóðlegu staðlasamtakanna W3C (WCAG 2.0 AA) sem hefur verið kynntur hagsmunaaðilum og farið í gegnum víðtækt umsagnarferli á vegum innanríkisráðuneytisins. Ráðuneytinu bárust á annan tug umsagna í gegnum wiki-umræðu eða tölvupóst og í þeim öllum kom fram stuðningur við þá hugmynd að gera WCAG 2.0 AA að viðmiði fyrir alla opinbera vefi á Íslandi.
Í innleiðingu stefnunnar felast eftirfarandi meginþættir:

  1. Allt efni sem er sett fram í öðru formi en texta þarf einnig að vera aðgengilegt sem texti til að notendur geti nýtt sér aðra framsetningu, svo sem stærra letur, punktaletur (e. braille), talmál eða tákn.
  2. Margmiðlunarefni sem sett er fram á vefjum þarf einnig að vera hægt að miðla á annan hátt.
  3. Búa þarf þannig um efni að mismunandi tæki og tól geti lesið úr því sömu upplýsingar.
  4. Notendur þurfa að sjá eða heyra efni og geta aðskilið efni í forgrunni frá bakgrunni.
  5. Vefsíður þurfa að búa yfir fullri virkni hjá notendum sem nýta sér eingöngu lyklaborð við skoðun vefja.
  6. Veita þarf notendum nægan tíma til að lesa og nýta efni.
  7. Forðast skal að setja fram efni sem vitað er að geti valdið flogaköstum (t.d. blikkandi myndir).
  8. Útfæra þarf leiðir til að hjálpa notendum að finna efni og ákvarða hvar þeir eru staddir á vefsvæðum hverju sinni.
  9. Ganga þarf þannig frá texta að hann sé læsilegur og skiljanlegur.
  10. Vefsíður þurfa að virka með fyrirsjáanlegum hætti.
  11. Hjálpa þarf notendum að forðast og leiðrétta mistök.
  12. Ganga þarf úr skugga um að öll tækni vefsíðunnar fylgi stöðlum, tryggja þarf að framtíðartækni og hjálpartæki sem notendur nýta sér til að skoða vefi virki.

Efni frá þriðja aðila sem birt er á opinberum vefjum taki einnig mið af ofangreindum aðgengisviðmiðum. Þá er farið fram á að hugbúnaðarsalar sem opinberir aðilar skipta við geri grein fyrir því hvernig búnaður þeirra tekur tillit til aðgengismála. Jafnframt skal tryggt að starfsmenn hafi aðgang að þeim hugbúnaði sem nauðsynlegur er til að gera efni aðgengilegt. 

Leitast er við að starfsfólk fái þjálfun í takt við starf sitt og hlutverk. Boðið verði upp á endurmenntun eftir því sem kröfur um aðgengi breytast eða ný tækni kemur fram. Þetta er meðal annars gert með því að birta upplýsingar og leiðbeiningar um aðgengismál hér á vefnum UT.is.

* Fyrirvarar:

  1. Í stað þess að gerð sé krafa um samtímatextun á beinum útsendingum er miðað við að efni útsendinga sé gert aðgengilegt með texta eins fljótt og unnt er að útsendingu lokinni og gildi það almennt um útsendingar frá opinberum vefjum.
  2. Ýmsar eldri PDF-skrár á opinberum vefjum eru ekki aðgengilegar fyrir skjálesara. Í slíkum tilvikum þarf að hafa samband við viðkomandi stofnun eða sveitarfélag og leitast við að finna viðunandi lausn.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum