Þjónusta
Þjónusta vefja
Í gæðakönnun innanríkisráðuneytisins „Hvað er spunnið í opinbera vefi?“, er þjónusta opinberra vefja skoðuð sérstaklega en henni er skipt í fjóra flokka og stofnun fær stig miðað við hæsta þjónustustig sem finnst á vef hennar.
Eftirfarandi eru valdar kaflar úr vefhandbókinn sem varða þjónustu
- Grunnþjónusta
- Þjónusta sem flýtir afgreiðslu
- Þjónusta sem felur í sér rafræna móttöku eða afgreiðslu
- Þjónusta sem felur í sér fyllilega rafræna málsmeðferð, ákvarðanatöku og skil niðurstaðna
Í gátlista könnunarinnar er metið hvort vefþjónusta uppfylli ákveðin stig rafrænna þjónustu. Fyrir að vera með vefsíðu eru gefin 25 stig, fyrir að vera með þjónustu sem flýtir afgreiðslu eru gefin 50 stig, fyrir rafræna móttöku eða afgreiðslu eru gefin 75 stig en fyrir fulla rafræna málsmeðferð 100 stig. Er sá hluti látinn gilda 80% í mati á þessum þætti á móti fjölda eyðublaða samkvæmt sjálfsmati.
Eyðublöð sem eru aðgengileg á vef gefa 50 stig hvert, eyðublöð sem hægt er að fylla út og senda inn á vef 75 stig og eyðublöð sem hægt er að skila inn á vef og fylgjast með afgreiðslu 100 stig. Eyðublöð sem eingöngu eru til á pappír gefa 0 stig. Tekið er vegið meðaltal af þessum einkunnum og hún látin gilda 20% á móti gátlistanum.

