Hoppa yfir valmynd

Skólaganga barna flóttafólks frá Úkraínu

Hér er að finna leiðbeiningar um það sem þarf að gera til að koma börnum og ungmennum á flótta frá Úkraínu í skóla á Íslandi. Áður en barn eða ungmenni getur hafið skólagöngu þarf það að hafa fengið dvalarleyfi og farið í læknisskoðun.

  1. Til að sækja um skólavist fyrir barn í leikskóla þarf í flestum tilvikum rafræn skilríki. 
  2. Forsjáraðilar (foreldrar) barna og ungmenna frá Úkraínu sem sækja um dvalarleyfi fá SIM-kort frá Útlendingastofnun fyrir farsímann sinn.
  3. Þegar Útlendingastofnun hefur veitt dvalarleyfi fá forsjáraðilar dvalarleyfiskort með kennitölu.
  4. Forsjáraðilar fara með farsímann og kennitölu til símafyrirtækis síns sem tengir nafn og kennitölu þeirra við símanúmerið sem þau hafa fengið. Sótt er um rafræn skilríki á eftirfarandi afgreiðslustöðum. Þegar sækja á um rafrænt skilríki í farsíma þarf að hafa farsímann við höndina og kennitölu auk þess að hafa ökuskírteini eða vegabréf meðferðis.  
  5. Fylla þarf út eyðublað á vef viðkomandi sveitarfélags um leikskólavist fyrir barnið. Í flestum tilvikum fer barnið á biðlista þar til pláss losnar. Börn eru tekin inn eftir aldri (elstu börnin fyrst). Hafið samband við sveitarfélagið ef þið þurfið aðstoð.
  6. Hægt er að hafa samband við sveitarfélag um skólagjöld og framvindu mála.
  7. Forsjáraðilar þurfa að fara með barn sitt í læknisskoðun áður en það getur byrjað í leikskóla.
  8. Sveitarfélagið sendir staðfestingu til forsjáraðila þegar barninu er úthlutað pláss í leikskóla. Þar koma fram upplýsingar um næstu skref.
  1. Til að sækja um skólavist fyrir barn í grunnskóla þarf í flestum tilvikum rafræn skilríki.
  2. Forsjáraðilar (foreldrar) barna og ungmenna frá Úkraínu sem sækja um dvalarleyfi fá SIM-kort frá Útlendingastofnun fyrir farsímann sinn.
  3. Þegar Útlendingastofnun hefur veitt dvalarleyfi fá forsjáraðilar dvalarleyfiskort með kennitölu.
  4. Forsjáraðilar fara með farsímann og kennitölu til símafyrirtækis síns sem tengir nafn og kennitölu þeirra við símanúmerið sem þau hafa fengið. Sótt er um rafræn skilríki á eftirfarandi afgreiðslustöðum. Þegar sækja á um rafrænt skilríki í farsíma þarf að hafa farsímann við höndina og kennitölu auk þess að hafa ökuskírteini eða vegabréf meðferðis.
  5. Fylla þarf út eyðublað á vef viðkomandi sveitarfélags um grunnskólavist fyrir barnið þitt. Hafið samband við sveitarfélagið ef þið þurfið aðstoð.
  6. Haft er samband við sveitarfélag ef þið hafið ekki fengið svar við umsókn innan tveggja vikna.
  7. Forsjáraðilar þurfa að fara með barn sitt í læknisskoðun áður en það getur byrjað í grunnskóla.
  8. Sveitarfélagið sendir staðfestingu til forsjáraðila um grunnskólavist. Þar koma fram upplýsingar um næstu skref.
  1. Þeir sem hafa lokið grunnskólanámi eða náð 16 ára aldri eiga rétt á að hefja nám í framhaldsskóla.
  2. Nemendur þurfa að fara í læknisskoðun áður en þeir geta byrjað í framhaldsskóla.
  3. Ellefu framhaldsskólar eru með móttökuáætlun fyrir ungmenni á framhaldsskólastigi. Forsjáraðilar (foreldrar) finna þann skóla sem er næstur þeim og hafa samband við tengilið sem veitir nánari upplýsingar. Skólarnir og tengiliðirnir eru eftirfarandi:

    Reykjavík og nágrenni:

    Borgarholtsskóli (BHS)
    í úthverfi Reykjavíkur í Grafarvogi. Hann er framsækinn og tæknivæddur nútímaskóli með um 1200 nemendur og fjölbreytt námsframboð. M.a. eru í boði bóknámsbrautir, bíltæknibrautir, íþrótta- og afrekssvið, félagsvirkni- og uppeldissvið, starfsbraut fyrir fatlaða, listnám og málm- og véltæknibrautir. Jafnframt er í boði almenn námsbraut fyrir nemendur sem ekki uppfylla skilyrði til náms á öðrum brautum. Boðið er upp á dagskóla og dreifnám.
    Tengiliður: Þórdís Ólafsdóttir, [email protected]
    Sími: 535 1700

    Fjölbrautaskólinn við Ármúla (FÁ)
    er staðsettur við Ármúla í Reykjavík. Skólinn sérhæfir sig í heilbrigðisgreinum en býður jafnframt upp á fjölbreytt nám til stúdentsprófs, starfsbraut fyrir fatlaða og almenn námsbraut fyrir nemendur sem ekki uppfylla skilyrði til náms á öðrum brautum. Á öllum brautum er sérstaklega hugað að þörfum nemenda með annað móðurmál en íslensku en nemendur af erlendum uppruna eru 10 - 15% nemenda skólans. Fjöldi nemenda í dagskóla eru um 850 og þá eru um 1100 nemendur í fjarnámi við skólann. Í FÁ er rekið öflugt fjarnám á sömu námsbrautum og eru í boði í dagskóla.
    Tengiliður: Kristen Mary Swenson, [email protected]
    Sími: 525 8800

    Menntaskólinn við Hamrahlíð (MH)
    er um 1100 nemenda framhaldsskóli staðsettur við Hamrahlíð í Reykjavík og liggur vel með tilliti til almenningssamgangna. Skólinn er framsækinn bóknámsskóli sem býður upp á hefðbundnar bóknámsbrautir til stúdentsprófs, listdansbraut og starfsbraut fyrir fatlaða nemendur. Í boði er einnig IB braut, sem er samræmt alþjóðlegt og krefjandi nám eftir námskrá IB samtakanna (International Baccalaureate). Það nám fer fram á ensku. Skólinn býður einvörðungu upp á staðnám.
    Tengiliður: Guðmundur Arnlaugsson, [email protected]
    Sími: 595 5200

    Suðurnes:

    Fjölbrautaskóli Suðurnesja (FS)
    er um 900 nemenda framhaldsskóli staðsettur í Reykjanesbæ á Suðurnesjum. Skólinn býður upp á fjölbreytt námsframboð s.s. stúdentsprófsbrautir, starfsnámsbrautir sem og starfsbrautir fyrir fatlaða nemendur og móttökubraut fyrir erlenda nemendur. Í skólanum er hægt að stunda nám í raunvísindum, félagsvísindum, viðskiptagreinum, myndlist, fatagerð, íþróttum, tölvufræði, húsasmíði, rafvirkjun, vélstjórn og hárnsnyrtiiðn. Jafnframt er í boði nám fyrir nemendur sem ekki uppfylla skilyrði til náms á öðrum brautum.
    Tengiliður: Ægir Karl Ægisson, [email protected]
    Sími: 421 3100

    Vesturland:

    Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi (FVA)
    er um 500 nemenda framhaldsskóli á Akranesi, í um 45 mínútna fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu. Hann býður upp á fjölbreytt námsframboð s.s stúdentsprófsbrautir, afrekssvið í íþróttum, starfsbraut fyrir fatlaða og iðnnám. Þar má nefna húsasmíði, vélvirkjun, rafvirkjun, sjúkraliðanám og félagsliðabraut. Við skólann er starfrækt gott mötuneyti og heimavist með 30 2ja manna herbergjum.
    Tengiliður: Steinunn Inga Óttarsdóttir, skólameistari [email protected]  
    Sími: 433 2500

    Menntaskóli Borgarfjarðar (MB)
    er um 150 nemenda framhaldsskóli staðsettur í Borgarnesi á Vesturlandi. Skólinn býður upp á hefðbundnar bóknámsbrautir til stúdentsprófs auk starfsbrautar. Öflugt félagslíf er við skólann og nemendur og starfsfólk mjög náið.
    Tengiliður: Bragi Þór Svavarsson [email protected]
    Sími: 844 4259

    Vestfirðir:

    Menntaskólinn á Ísafirði (MÍ)
    er um 500 nemenda framhaldsskóli á Ísafirði á Vestfjörðum. Skólinn er öflugur framhaldsskóli með fjölbreytt námsframboð s.s. bóknámsbrautir til stúdentsprófs, afreksíþróttasvið, starfsbraut fyrir fatlaða nemendur, grunnnám hár- og snyrtigreina, grunnnám málm- og véltæknigreina, grunnnám rafiðna, húsasmíði, lista- og nýsköpunarbraut, sjúkraliðabraut, skipstjórnarnám, stálsmíði og vélstjórn. Við skólann er starfrækt gott mötuneyti og heimavist. Skemmtilegt félagslíf er í boði.
    Tengiliður: Heiðrún Tryggvadóttir, [email protected]     
    Sími: 450 4400

    Norðurland:

    Verkmenntaskólinn á Akureyri (VMA)
    er staðsettur á Akureyri á Norðurlandi en fjöldi nemenda við skólann er rúmlega 1000. Skólinn býður upp á fjölbreytt nám; bæði nám til stúdentsprófs og fjölbreytt iðn- og starfsnám t.d. sjúkraliðabraut, rafvirkjun, rafeindavirkjun, húsasmíði, grunnnám matvælagreina, vélstjórnarnám og háriðn. Nemendur sem hafa ekki náð fullnægjandi árangri í kjarnagreinum grunnskóla geta sótt um á brautarbrú og á starfsbraut og sérnámsbraut fer fram einstaklingsmiðað nám. Við skólann er öflugt félagslíf nemenda. Skólinn er mjög virkur í erlendu samstarfi sem nemendur fá tækifæri að taka þátt í. Öflugt teymi náms- og starfsráðgjafa, hjúkrunarfræðings, forvarnarfulltrúa og sálfræðings ásamt umsjónarkennurum halda utan um nemendur og líðan þeirra. Skólinn býður upp á heimavist.
    Tengiliður: Helga Júlíusdóttir, [email protected]
    Sími: 464 0300

    Austurland:

    Verkmenntaskóli Austurlands (VA)
    er staðsettur í Neskaupstað á Austurland. Skólinn leggur áherslu á að bjóða upp á fjölbreytt nám og mæta ólíkum áhugasviðum og hæfileikum nemenda. Þar gefst nemendum kost á að leggja stund á nám á iðn- og starfsnámsbrautum s.s. rafvirkjabraut, vélvirkja- og vélstjórnarbraut og húsasmíðabraut auk bóknámsbrauta til stúdentsprófs. Í skólanum er einnig í boði starfsbraut fyrir fatlaða. Fjöldi nemenda er um 370 og þá er heimavist við skólann.
    Tengiliður: Hafliði Hinriksson, [email protected]
    Sími: 477 1620

    Suðurland:

    Fjölbrautaskóli Suðurlands (FSU)
    er um 800 nemenda framhaldsskóli staðsettur á Selfossi á Suðurlandi. Skólinn býður bæði upp á hefðbundnar bóknámsbrautir til stúdentsprófs og fjölbreytt starfsnám, s.s. tréiðn, málmiðn, rafiðn, háriðn sjúkraliðabraut og hestabraut. Þá er öflug starfsbraut fyrir fatlaða nemendur, Í boði eru íþróttaakademíur sem fléttast inn í annað nám. Öflugt félags- og íþróttastarf er við skólann og boðið upp á heimavist.
    Tengiliður: Sigþrúður Harðardóttir, [email protected]
    Sími: 480 8100

    Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum (FÍV)
    er staðsettur í Vestmannaeyjum á Suðurlandi. Skólinn er áfangaskóli sem bæði býður upp á hefðbundnar bóknámsbrautir til stúdentsprófs og starfsnám, s.s grunnnám rafiðna, byggingarmanna og málm- og véltæknigreina, vélstjórn B og sjúkraliðabraut. Boðið er upp á nám á framhaldsskólabrú og starfsbraut er starfrækt fyrir fatlaða nemendur. Í boði er íþróttaakademía sem fléttast inn í annað nám. Nemendur við skólann eru um 200 talsins.
    Tengiliður: Ingibjörg Jónsdóttir, [email protected]
    Sími: 488 1070

  • Upplýsingablað um skólagöngu barna frá Úkraínu í íslenska framhaldsskóla á úkraínsku og á ensku, ásamt staðsetningu skóla á korti
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum